Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Það var sannkölluð hátíðarstemning í húsakynnum Listaháskóla Íslands í Stakkahlíðinni síðastliðinn laugardag í tilefni Háskóladagsins í Reykjavík. Nemendur og starfsfólk skólans tóku á móti um 600 áhugasömum gestum sem kynntu sér námsframboðið. Eins voru vinnurými nemenda og verkstæði byggingarinnar opin gestum þar sem nemendaverkefni voru til sýnis og fulltrúar námsleiðanna sátu fyrir svörum og sögðu frá starfseminni.
Dagskráin var þétt að vanda en tónlistardeildin sá fyrir lifandi tónlist yfir daginn, nemendur myndlistardeildar settu upp sýningu með nýlegum verkum nemenda og kvikmyndalistadeild bauð upp á popp og kvikmyndasýningu svo að fátt eitt sé nefnt. Þá stóð gestum til boða að gæða sér á nýbökuðum vöfflum og kaffi.
Við þökkum gestum okkar kærlega fyrir komuna og minnum á háskóladaginn á Ísafirði þann 5. mars og á Akureyri 11. mars.






























