Hrefna Sigurðardóttir, lektor í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands, hefur undanfarin tvö ár unnið að rannsókn sem snýr að leturteikningum myndlistarkonunnar og kennarans Valgerði Briem. Afrakstur rannsóknarinnar birtist nú í tveimur bókum sem gefnar eru út af Gerðarsafni í tengslum við sýninguna Valgerður.
Í greininni Fyrirmynd, eftirmynd – Hugmyndir og höfundareinkenni í leturteikningum Valgerðar Briem, fjallar Hrefna um leturteikningar Valgerðar út frá sjónarmiðum grafískrar hönnunar og út frá áherslum Valgerðar í kennslu og myndlist sinni. Greinin er birt í bókinni Myndvit – Arfleifð Valgerðar Briem ásamt skrifum eftir Cecilie Gaihaede, sem stýrir verkefninu, Jón Proppé og Aðalheiði Lilju Guðmundsdóttur.
Valgerður Briem (1914–2002) var myndlistarkona, kennari og frumkvöðull á sviði myndmenntar. Kennsla var stór þáttur í ævistarfi hennar og hafði hún áhrif á fjölda nemenda sem síðar létu að sér kveða í íslenskri myndlist. Gerðarsafn varðveitir stórt safn verka hennar en árið 2006 færði fjölskylda Valgerðar safninu um 1.640 verk á pappír, meðal annars teikningar, vatnsliti, skissur, letur og mynstur.
Leturteikningar sem brú milli hönnunar og handverks
Samhliða rannsóknargreininni vann Hrefna Stafabók Valgerðar Briem, sem hún hannaði og tók saman. Í bókinni eru birtar leturteikningar Valgerðar sem upphaflega voru teiknaðar til notkunar í útsaumi. Valgerður hafði sjálf í huga að gefa slíka bók út með leturformum sínum, sem varð þó ekki af. Því er þetta í fyrsta sinn sem leturteikningar hennar fyrir útsaum koma saman í prenti.
Stafabók Valgerðar Briem er gefin út af Gerðarsafni, líkt og Myndvit – Arfleifð Valgerðar Briem. Bækurnar komu út 16. september 2026, samhliða opnun sýningarinnar Valgerður í Gerðarsafni.
Sýningin er hluti af umfangsmikilli rannsókn Gerðarsafns á ævistarfi Valgerðar Briem. Safnið hlaut tveggja ára rannsóknarstyrk frá Safnasjóði til verkefnisins, sem er leitt af Cecilie Gaihede og sameinar rannsóknir á listsköpun og kennslu Valgerðar við sýningarhald og útgáfu.
Sýningin Valgerður stendur yfir í Gerðarsafni til 24. janúar 2027.