Hollneminn og kvikmyndagerðarkonan Vigdís Howser hefur verið valin til þátttöku í vinnustofu þýska leikstjórans Werner Herzog á Asoreyjum í desember. Werner Herzog er heimsþekktur þýskur kvikmyndaleikstjóri, handritshöfundur og rithöfundur, þekktur fyrir einstakan frásagnarstíl og óhefðbundna nálgun í kvikmyndagerð.

Vigdís útskrifaðist sem handritshöfundur frá kvikmyndalistadeild LHÍ árið 2025. Vigdís hefur vakið athygli fyrir kvikmyndagerð sína en árið 2024 frumsýndi hún stuttmynd á RIFF, alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík. Nú heldur vegferðin áfram með nýju stuttmyndaverkefni undir handleiðslu eins þekktasta kvikmyndagerðarmanns samtímans, Werner Herzog.

Við óskum Vigdísi innilega til hamingju og hlökkum til að fylgjast með framhaldinu.