Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Í janúar síðastliðnum fékk leikhópurinn Baksviðs úthlutað styrk frá Sviðslistasjóði til að setja upp leikýninguna Heimsóknin til Thalíu. Vigdís Gunnarsdóttir, lektor við listkennsludeild, er í forsvari fyrir leikhópinn og skrifaði verkið. Ásamt hennir eru í hópnum Halldóra Rósa Björnsdóttir, Sigríður Ásta Olgeirsdóttir og Tómas Geir Howser.
Á vormánuðum mun leikhópurinn bjóða nemendum í 4. og 5. bekk grunnskólanna á Vesturlandi á leiksýninguna Heimsóknin til Thalíu. Verkið hverfist um heimsókn í leikhúsið til leiklistargyðjunnar Thalíu.
Í heimsókninni fá áhorfendur að kynnast litskrúðugum einstaklingum sem vinna í leikhúsinu, kíkja á bak við tjöldin og verða þátttakendur í æsispennandi atburðarás sem teygir sig um ólíka kima leikhússins. Sýningin gefur nemendum innsýn inn í heim leikhússins á lifandi og skapandi hátt.