Haustúthlutun úr myndlistarsjóði 2026 fór fram þann 5.nóvember 2026. Logi Einarsson, Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, og Sigrún Inga Hrólfsdóttir, formaður myndlistarráðs, afhentu styrkina en alls voru 32 milljónum króna úthlutað til 48 verkefna.
Fjöldi styrkhafa koma úr röðum LHÍ í ár. Sigurður Guðjónsson, prófessor við yndlistardeild hlaut styrk fyrir Kvikmyndaverk 2004-2007 og Julie Sjöfn Véronique Gasiglia, umsjónarmaður ljósmyndaverkstæðis hlaut styrk fyrir einkasýningu í Y gallery. Þá hlutu einnig styrki fjölmargir af okkar frábæru stundakennurum en þau eru Arnar Ásgeirsson, Gústav Geir Bollason, Linus Lohmann, Margrét H. Blöndal, Ólafur Sveinn Gíslason, Sigurður Þórir Ámundason, Unnar Örn Jónasson Auðarsson og Eygló Harðardóttir.
Myndlistardeild og Listaháskóli Íslands sendir öllum styrkhöfum bestu hamingjuóskir. Listi yfir styrkhafa má nálgast hér.