Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Goddur 1955-2026

  • 7.janúar 2026

Við hjá Listaháskóla Íslands syrgjum kæran félaga Guðmund Odd Magnússon, Godd, sem lést af slysförum þann 3. janúar sl.

Goddur var sæmdur heiðursprófessorsnafnbót við Hönnunardeild Listaháskólans á síðasta ári fyrir einstakt framlag sitt til myndlistar, grafískrar hönnunar og fræðslu á sviði menningar og lista á Íslandi og á alþjóðavettvangi. Áhrif starfa hans eru víðfem og hafa mótað kynslóðir hönnuða og listamanna á Íslandi. Hann var vinsæll kennari og fyrirlesari og meðvitaður um mikilvægi faglegrar opinberrar umræðu um listir og hönnun fyrir menningarlega sjálfsmynd þjóðar.

Goddur nam myndlist við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og síðar grafíska hönnun við Emily Carr College of Art and Design í Vancouver og starfaði þar um hríð sem hönnuður, en snéri aftur til Íslands þar sem hann varð lykilmaður í þróun hönnunarkennslu næstu áratugina. Hann var deildarstjóri í grafískri hönnun við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og síðan fyrsti fagstjóri grafískrar hönnunar við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskólans við stofnun skólans. Goddur var prófessor í grafískri hönnun um langt skeið og varð fyrsti rannsóknarprófessor við skólann síðustu starfsárin, þar sem hann einbeitti sér að umfangsmiklu verkefni, Sjónarfur í samhengi (1844 – 1944), sem hlotið hafði styrk úr Rannsóknarsjóði Vísinda- og tækniráðs og hýst var við Listaháskólann. List- og hönnunarverk hans hafa verið birt í fjölmörgum útgáfum og sýningum á Íslandi og erlendis. Með rannsóknum sínum, erindum, skrifum og þátttöku í umræðum um hönnun, myndlist og menningu tókst Goddi að draga fram vægi sjónrænna þátta menningarsögunnar. Með mælsku sinni, djúpri þekkingu og ástríðu fyrir málefnunum átti hann auðvelt með að ná til leikinna jafnt sem lærðra. Við fráfall hans verður menningarumhverfið á Íslandi snauðara. Að leiðarlokum þakkar starfsfólk ásamt fyrrverandi og núverandi nemendum Listaháskólans fyrir samfylgdina og sendir fjölskyldu og vinum Godds innilegar samúðarkveðjur.