Nína Hjálmarsdóttir, lektor í sviðslistafræðum og fagstjóri fræða í sviðslistadeild, er nýkomin heim frá dvöl sinni í Buenos Aires, Argentínu, þar sem hún var gestakennari hjá Listaháskólanum í Buenos Aires, Universidad Nacional de las Artes (UNA). Dvölin var styrkt af Erasmus+ og gerð möguleg með stuðningi frá alþjóðaskrifstofu LHÍ.
Þar kenndi Nína meistaranemum í samtímadansi við dansdeild skólans (Artes del movimiento) námskeið á spænsku sem bar nafnið “Uso de la teoría en la creación escénica: desidentificación, afecto y world-making”, sem þýðist á íslensku sem „Að nota teoríu í sviðsverkum: afkenning, áhrifafræði og heimssmíð”. Námskeiðið einblíndi á hinsegin fræði og hvernig þau geta virkað sem innblástur í smíði sviðsverka, nánar tiltekið kenningar José Esteban Muñoz, Judith Butler, Sara Ahmed og Audre Lorde, og samanstóð af lestri, fyrirlestrum, áhorfi á list, verklegum æfingum og performatívum svörum nemenda.
Nínu var einnig boðið að taka þátt í alþjóðlegri ráðstefnu haldin af háskólanum, “IV Congreso Internacional de Artes: Revueltas del Arte” sem gæti þýðst sem „IV Alþjóðleg listráðstefna: Listir sem ögrandi afl”, þar sem hún hélt erindi um kennslufræðilegar rannsóknir sínar en kynnir og umræðustjóri var rektor háskólans, Sandra Torlucci. Ritrýnd grein út frá fyrirlestrinum verður gefin út af tímariti dansdeildar háskólans, IDYM (Investigaciones en danza y movimiento), í 14. tölublaði ritsins á næstu misserum.




