Listaháskóli Íslands tekur þátt í árlegu 16 daga átaki UN Women gegn kynbundnu ofbeldi með því að lýsa upp byggingar skólans í appelsínugulum lit. Með þátttökunni viljum við sýna samstöðu í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og vekja athygli á mikilvægi jafnréttis, virðingar og öruggra samskipta.

Átakið hefst í dag, 25. nóvember, á alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi, og stendur til 10. desember, á alþjóðlegum mannréttindadegi. Appelsínuguli liturinn er tákn átaksins og stendur fyrir bjartari framtíð án ofbeldis.

Stafrænt ofbeldi í brennidepli

Í ár beinir UN Women á Íslandi sjónum sérstaklega að hatursorðræðu og stafrænu einelti undir yfirskriftinni„Stafrænt ofbeldi er alvöru ofbeldi“. Markmið átaksins er að vekja athygli á þeim alvarlegu afleiðingum sem hatursfull ummæli, áreitni og einelti á stafrænum miðlum geta haft á einstaklinga og samfélagið í heild.

Stafrænt ofbeldi getur haft djúpstæð áhrif á líðan, heilsu og þátttöku fólks í samfélaginu. Sérstaklega er vakin athygli á því hvernig slíkt ofbeldi beinist að konum, hinsegin fólki og öðrum hópum sem eru berskjaldaðri fyrir hatursorðræðu og mismunun.

Sýnum samstöðu í verki

Með því að lýsa upp byggingar Listaháskóla Íslands í appelsínugulum lit tökum við þátt í alþjóðlegri samstöðu gegn kynbundnu ofbeldi. Sem háskóli sem leggur áherslu á skapandi hugsun, gagnrýna umræðu og samfélagslega ábyrgð viljum við leggja okkar af mörkum til að efla vitund um mikilvægi jafnréttis og virðingar í öllum samskiptum, jafnt í raunheimum sem á stafrænum vettvangi. Baráttan gegn kynbundnu ofbeldi er sameiginlegt verkefni okkar allra.

Nánari upplýsingar um átakið má finna á vef UN Women á Íslandi.