Í lok júní komu saman ungir tónlistarmenn frá Íslandi, Ítalíu, Ungverjalandi og fleiri löndum í Búdapest til að vinna að nýrri tónlist, læra hvert af öðrum og að lokum flytja afrakstur vinnunnar á uppskerutónleikum. Tilefnið var BUBORE Ensemble, alþjóðlegt Erasmus+ Blended Intensive Programme (BIP) verkefni sem Listaháskóli Íslands leiðir í samstarfi við Liszt Ferenc Academy of Music í Búdapest og Conservatorio Claudio Monteverdi í Bolzano.
Verkefnið er leitt af Listaháskóla Íslands að frumkvæði Atla Ingólfssonar, tónskálds og prófessors við tónlistardeild LHÍ. Markmiðið er að skapa vettvang þar sem tónsmíðanemar og flytjendur frá ólíkum löndum vinna náið saman að nýjum verkum og fá tækifæri til að þróa þau í samstarfi við bæði kennara og aðra þátttakendur. BUBORE Ensemble, byggir á fyrra samstarfi milli Listaháskóla Íslands og Conservatorio Claudio Monteverdi en að þessu sinni var samstarfið stækkað með þátttöku þriðja skólans, Liszt Ferenc Academy of Music, sem gegndi hlutverki gestgjafa.
Íslensku þátttakendurnir komu úr ólíkum greinum tónlistardeildar LHÍ, meðal annars tónsmíðum, hljóðfæraleik og söng. Auk þeirra komu nemendur frá Argentínu, Austurríki, Ítalíu, Japan, Ungverjalandi, Grikklandi, Slóveníu og Bandaríkjunum saman í Búdapest til að vinna að fjölbreyttum tónlistarverkefnum og kynnast ólíkum nálgunum að tónlistarsköpun og flutningi.
Á meðan á dvölinni stóð sóttu tónsmíðanemar masterklassa undir leiðsögn prófessora frá samstarfsskólunum, þar á meðal Atla Ingólfssonar, Luca Macchi og Gyula Fekete. Hljóðfæraleikarar og söngvari unnu í þremur hópum undir stjórn nemenda í hljómsveitarstjórn og nutu jafnframt leiðsagnar og masterklassa frá maestro Emir Saul, prófessor við Conservatorio Claudio Monteverdi í Bolzano.

Megináhersla vikunnar var á æfingar á verkum tónsmíðanema, þar sem flytjendur fengu tækifæri til að vinna náið með tónskáldunum að þróun og flutningi verkanna. Auk þess æfðu flestir þátttakendur saman verkið Ragtime eftir Igor Stravinsky. Dagskráin var þéttskipuð og einkenndist af æfingum, masterklössum, fyrirlestrum, samræðum og skapandi samstarfi frá morgni til kvölds.
Þrátt fyrir að hitinn í Búdapest hafi farið um og yfir 40 gráður á meðan verkefninu stóð, reyndist það vera hin fullkomna afsökun fyrir þátttakendur að halda sig innandyra og sökkva sér algjörlega í tónlistina og vinnuna. Þó leyfðu nemendur sér að taka sér stund á milli stríða og svamla í hinum frægu Széchenyi böðunum, kynna sér mannlífið og helstu kennileiti borgarinnar, eins og Halászbástya og Þinghúsið við Dóná.
Verkefninu lauk með glæsilegum lokatónleikum þann 2. júlí í hinum gullfallega tónleikasal Liszt Ferenc Academy of Music í Búdapest, þar sem afrakstur vikunnar var fluttur fyrir áheyrendur.

Atli Ingólfsson
tónskáld og prófessor við Listaháskóla Íslands:
Tónsmíðar eru fag sem þrífst á sérstakri orðræðu um form, efni, frágang og tjáskipti. Þar eru engin algild sannindi en um leið og komið er á æfingu með flytjendum reynir á allar skáldlegar forsendur og aðferðir tónskáldsins. Tónsmíðanám er þess vegna óhugsandi án þess að hugmyndirnar og tónletrið sé reglulega borið á púlt flytjenda.
Eitthvað svona vorum við Luca Macchi, tónsmíðaprófessor í Monteverdi konservaotíinu í Bolzano, að ræða þegar við ákváðum að safanum úr Erasmustrénu væri vel varið í verkefni þar sem tónskáld og flytjendur ólíkra landa mundu hittast og gleyma sér í könnun og sviðsetningu nýsamdra tónverka. Við settum fyrst saman viðburð þar sem nemendur úr Listaháskóla Íslands og Konservatoríinu í Bolzano blönduðu geði og frömdu tónleika í Reykjavík í september og Bolzano í júní. Þetta var veturinn 2022 – 2023.
Síðan datt okkur í hug að þenja samstarfið þannig að stærri og fjölbreyttari efnisskrá yrði til. Því buðum við kollega okkar Gyula Fekete, prófessor við Lizst akademíuna í Búdapest, að taka þátt með sínum nemendum. Úr varð að þessir þrír tónlistarháskólar hittust á tónþingi í Búdapest og þar æfðu átján hljóðfæranemar frá löndunum þremur glæný tónverk eftir sex tónsmíðanema á BA, MA og doktorsstigi, en jafnframt fengu nemendur í hljómsveitarstjórn að spreyta sig á að stýra æfingum.
Það verður ekki ofmetið hversu dýrmæt reynsla þetta er jafnt fyrir tónskáldin sem flytjendurna. Flytjendurnir ganga hér út úr fastskorðuðum þjálfunarmynstrum hljóðfæra sinna og þurfa að sýna opinn hug, sveigjanleika og nákvæmni á sama tíma, en tónskáldin fá uppskeru skrifa sinna í túlkun nemenda af mörgu þjóðerni, umræður og gagnrýni frá okkur kennurunum, og vitaskuld fá allir þátttakendur ómetanlegt samneyti við jafningja af fjarlægum slóðum, sem stækkar reynsluna, gleðina og samhuginn. Okkur upphafsmennina grunar að þarna sé sáð margvíslegum fræjum minninga, vináttu og faglegrar þekkingar sem unga fólkið gæti búið að um langa framtíð.
Raddir þátttakenda
Vega Magdalena Lövdahl, flautuleikari:
„Tónlistarferðin mín til Búdapest var mjög lærdómsrík og gefandi. Ég fekk það tækifæri að spila í Liszt Akademíunni og að kynnast nýju tónlistarumhverfi og tónlistarfólki. Þetta var alveg æðislegt tækifæri og ég lærði mikið á þessu verkefni.“
Anna Elísa Axelsdóttir, söngkona:
„Frábært tækifæri til að kynnast nýrri tónlist, borg og fólki!
Mögnuð ferð.“
Fenrir Óskarsbur, píanóleikari:
„Þetta var einstakt tækifæri til að kynnast ýmsu tónlistarfólki og nálgunum allsstaðar að, og sigrast á hitabylgjunni saman!“
Katrín Jónsdóttir, fiðluleikari:
„Frábært tækifæri til þess að kynnast fólki í tónlist frá öðrum löndum og einstakt að spila í Liszt akademíunni!“
Friðrik Örn Sigþórsson, tónskáld:
„Það er búið að vera einstaklega skemmtilegt að fá þetta tækifæri til að kynnast nemendum og kennurum frá öðrum löndum, það gefur manni aðra sýn á eigið nám og víkkar tengslanetið. Svo er Búdapest líka bara fáránlega næs borg.“
Eberg Óttar Elefsen, trompetleikari:
„Gaman að kynnast erlendum nemendum og spila saman áhugaverð ný verk.“



Dýrmæt upplifun
Samstarf af þessu tagi er ómetanlegt fyrir unga listamenn. Það gefur þeim tækifæri til að vinna þvert á landamæri, kynnast ólíkum vinnuaðferðum og mynda tengsl sem geta orðið grunnur að framtíðarsamstarfi.
Fyrir alla þátttakendur nemendur, kennara og starfsfólk var BUBORE Ensemble eftirminnileg upplifun og dýrmætt veganesti inn í framtíðina.
Nánari upplýsingar um verkefnið og lokatónleikana má finna á vef Liszt Ferenc Academy of Music.






























