Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Arnar Dan Kristjánsson – viðtal

  • 26.febrúar 2026

Arnar Dan Kristjánsson er meistaranemi í listkennsludeild LHÍ

 

„Ég er Hafnfirðingur… eða ég ólst þar upp. Í dag er ég búsettur í vesturbæ Reykjavikur og ætli ég sé ekki vesturbæingur í dag. Þetta er stöðugt ferðalag sjálfssköpunar og þess vegna finnst mér í raun alltaf skrítið að byrja setningar á ég er. Á morgun gæti ég allt í einu orðið eitthvað allt annað. Í dag er ég aðalega kennaranemi, kennari, leikari, smiður og faðir,“ segir Arnar Dan en áður en hann kom í nám í listkennsludeild var hann að leika, kenna og smíða hús; að troða lífsins marvaða eins og hann segir sjálfur.

Arnar ásamt konu sinni Sigríði Soffíu og börnum þeirra.

„Ég starfaði sem deildarstjóri við leikskólann Dvergastein, upphaflega bara í þeirri von um að koma dóttur minni að. Mig þyrsti í öryggi, reglu og það að geta átt tíma með fjölskyldunni á kvöldin,“ segir Arnar en kennsla hefur í raun alltaf fylgt honum.

„Móðir mín er kennari, ég hef mikið starfað með börnum, bæði við stundakennslu og frístundarstarf, leikstýrt sýningum í grunnskólum og fengist við kennslu með einum og öðrum hætti. Við erum alltaf verðandi og lífið hefur leitt mig hingað. Ég hef alla tíð hef haft brennandi áhuga á samskiptum og tengslagaldrinum.“

Hjá leikskólanum Dvergasteini fékk Arnar ábyrgð, reynslu og áhuginn á leikskólamálum jókst.

„Mig langaði að vera breytingin sem ég vil sjá innan kerfisins, ekki kvarta heldur taka ábyrgð og gera. Leikskólastjórinn benti mér á kennaranámið en Reykjavíkurborg styður við starfsmenn sem hafa áhuga á kennaranáminu með veglegum námstyrk. Svo 2025 ákvað ég að slá til og hóf nám við listkennsludeild hjá LHÍ,“ segir Arnar en tíminn hans í deildinni hefur verið verulega jákvæður.

„Ég er ferðalagið og námið er að kenna mér vinnubrögð sem ég kem til með að nýta mér í framtíðinni. Dagbækur og starfendarannsóknir. Skynjun og kennslufræði. Love it. Ég hef öðlast dýpri sýn á fræðin og kynnst frábærum listamönnum sem vilja láta gott af sér leiða. Með þessari ákvörðun hef ég opnað á nýja möguleika fyrir mig sem listamann og er ég því verulega þakklátur þessari braut Listaháskólans. Það er góð tilfinning að finna fyrir vexti í átt að einhverju fallegu.“

Spurður út í fyrirætlanir um lokaverkefni úr meistaranáminu stendur ekki á svörum: „Já ég er stórhuga og spurning hvort mér gefist tóm til þess að útfæra þetta en í dag er ég aðalega að safna að mér fræðum, verða fyrir áhrifum og móta hugmynd. Leikari stofnar leikskóla verður yfirskrift lokaverkefnisins“ segir Arnar en draumur hans er að byggja upp stefnu þar sem allt kjarnast í kringum leik og tengsl.

„Leikurinn er galdur sem tengir og byggir upp traust. Starfsfólkið hjá Leikleikskólanum þarf bæði að kunna að leika sér sjálft, þekkja sitt eigið flæðisástand og búa yfir yfirgripsmikilli þekkingu á sjálfsprottnum leik barna. Annars getur þú verið einhverstaðar annarstaðar,“ segir Arnar en hann sér mikla fegurð í listinni.

„Listamenn eru næmar skepnur sem þrífast á tengslum rétt eins og börn. Því langar mig að hafa kennara hjá mér sem hafa mikla og ríka listræna taug og lifa fyrir það að hafa áhrif á þroskaferli barna. Við þurfum fagfólk út á gólf ekki á fundi. Þú vinnur ekki við það að vera kennari; þú ert kennari og ert alltaf undirbúinn. Þetta er draumur og mig langar að dvelja aðeins í honum, hanna og móta húsnæði, efnivið og stefnu.“