Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Yfir 40 útskriftarviðburðir hjá Tónlistardeild LHÍ

  • 13.maí 2025

Tónlistardeild Listaháskóla Íslands hefur staðið fyrir yfir 40 tónleikum og lokaverkefnum á síðustu vikum. Fjöldi nemenda og tónlistarfólks hefur komið þar fram og tekið virkan þátt í fjölbreyttri og metnaðarfullri dagskrá sem endurspeglar breidd og sköpunarkraft deildarinnar.

Flestir viðburðanna fóru fram í Salnum í Kópavogi, þar sem nemendum var tekið af mikilli hlýju og fagmennsku. Salurinn er einstaklega vel til þess fallinn að hýsa fjölbreyttan tónlistarflutning og kynningar og styður þannig við þá fjölbreytni sem einkennir nemendahóp tónlistardeildarinnar. Nemendur komu einnig fram í Hallgrímskirkju og Laugarneskirkju og fleiri stöðum. Allsstaðar var samstarfið einstaklega gott og móttökurnar hlýlegar.

Tónlistardeild LHÍ vill færa öllum samstarfsaðilum innilegar þakkir fyrir öflugt samstarf og ómetanlegan stuðning við bæði skólann og nemendur hans. Slíkt framlag er afar mikilvægt fyrir þróun listnáms og listsköpunar á Íslandi.

Aðrar fréttir og greinar