Nú liggja fyrir niðurstöður hæfisnefndar vegna framgangsumsókna á haustönn.

Það er gaman að segja frá því að frá og með 1.janúar hljóta eftirfarandi framgang í starfi:

Úr hönnunardeild:

  • Adam Flint Taylor hlýtur framgang í stöðu dósents
  • Anna Dröfn Ágústsdóttir hlýtur framgang í stöðu dósents
  • Thomas Pausz hlýtur framgang í stöðu prófessors

Úr sviðslistadeild:

  • Brogan Davison hlýtur framgang í stöðu prófessors

Við erum stolt af öllu okkar framúrskarandi starfsfólki og óskum nýjum dósentum og prófessorum Listaháskólans innilega til hamingju!