Dagsetning
19. janúar 2024
Tími
17:00–20:00
Staðsetning
Bókasafnið Þverholti

Verið velkomin á útgáfuhóf 3.árs nema í grafískri hönnun þar sem bók, vefsíða og verk nemenda verða til sýnis. Vinnan er niðurstaða úr námskeiðinu Farvegir og Form sem kennt var í fjórða sinn nú fyrir áramót.

Farvegir og form byggir á inntaki og rannsóknarefni BA ritgerða þriðja árs nemenda í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands. Útgáfan er liður í að varpa ljósi á rannsóknina, dýpka hana og skoða ólíka þræði ritgerðanna og möguleika í sjónrænni framsetningu. Viðfangsefnin eru könnuð út frá ólíkum miðlum og þeim fundin viðeigandi farvegur.

Gestir geta gripið eintak af bókinni á viðburðinum sem er 384 blaðsíður í þetta sinn!

Sýningin sem ber heitið FF23384295U verður á bókasafninu í Þverholti Föstudaginn, 19. janúar milli klukkan 17:00 og 20:00.