Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Árleg sýning annars árs nema í Myndlistardeild við Listaháskóla Íslands opnar 4. desember á Korpúlfsstöðum og viljum við bjóða ykkur innilega velkomin á sýninguna ,,til mikils ama og allrar hamingju“.
Við tökum hátíðlega á móti ykkur 4. desember klukkan 18:00-21:00 með jólalegar veitingar í boði og í framhaldi þess verður sömuleiðis opið á sýninguna laugardaginn 6. desember frá 14:00-17:00.

til mikils ama og allrar hamingju

Mjólk er góð. Þjóð veit þá þrír vita, Korpúlfur, Einar Benediktsson, Thor Jensen. Við áttum með henni börn og bú og það var ekkert leyndarmál. Hún er ný, létt, súr, fjör og kókó. Einu sinni var hún bara góð. Hún rann hér eftir bökkum og búrum, ofan í flöskur og menn. Kýrnar sem hér bjuggu höfðu mikið um það að baula. Þó langt sé liðið, má enn heyra til þeirra á köldum kvöldum í desember. Helst baula vofur þeirra á list hinna andlega snauðu og firrtu, en það er leyndarmál. Fyrir svefninn er því ráð að fara með vísu þessa:

Korpúlfsstaðabeljurnar þær baula mikið núna.

Þær svífa hér um gangana, það hentar enga kúna.

Þær eru ekki til. Þær eru ekki til.

Þó ein hafi ratað á matseðil.

Verið ekki hrædd, kæru listunnendur. Sýning þessi hampar ekki list hinna andlega snauðu og firrtu. Þvert á móti sýna hér listamenn sterkt tengdir andanum. List þeirra er ný, létt, súr, fjör og kókó. Baulaðu nú kæri listunnandi, ef þú ert nokkurs staðar á lífi.

Listamenn: Agnes Ásta Guðmundsdóttir, Aleksander Kiigemägi, Andrea Lóa Guðnadóttir, Arna, Björk Einarsdóttir, Arna Hlín Aradóttir, Björn Ingi Baldvinsson, Björn Heimir Önundarson, Dýrunn Elín Jósefsdóttir, Elias Tannemark, Erla Rut Pétursdóttir, Friðrik Dagur Kristófersson, Maren Valsdóttir, Hanna Lára VIlhjálmsdóttir, Hera Katrín Karlsdóttir, Hjaltalín Hanný Aspard., Iuliia Vasileva, Ísak Sævarsson, Jakob Þór Smári, Jórunn Elenóra, Júlía Óskarsdóttir, Kristín, Gréta Jóhannsdóttir, Monika Jóhanna Karlsdóttir, Muni, Nora Eva Sigurdsson, Nóam Óli, Ollie Birki Sánchez-Brunete, Svava Dögg, Teitur Emil Vähäpassi, Torfi Sveinn Ásgeirsson, Þorbjörn Helgason & Þórunn Ebba Örvarsdóttir.

Opnunartímar:
Fimmtudagurinn 4. desember: 18:00-21:00
Laugardagurinn 6. desember: 14:00-17:00