Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Samtal um skapandi greinar: Skapandi ferli tölvuleikja

Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG) í samstarfi við CCP býður í samtal um skapandi greinar miðvikudaginn 8. apríl klukkan 10:15 – 11:45 í húsakynnum CCP Í Grósku, 3. hæð, að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík.

Að þessu sinni beinum við sjónum okkar að tölvuleikjagerð sem skapandi grein og þeim fjölbreyttu og skapandi ferlum sem liggja að baki þróun leikja. Fjallað verður um hvernig aðrar skapandi greinar og tæknileg vinna fléttast inn í ferlið og hvaða áskoranir og tækifæri fylgja því að starfa sem leikjahönnuður. Viðburðurinn fer fram á ensku.

Við fáum til okkar fjóra fyrirlesara sem veita okkur innsýn inn í skapandi ferlið:

  • Halldór Snær Kristjánsson, framkvæmdastjóri, listrænn stjórnandi og meðstofnandi Myrkur Games
  • María Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi Parity Games
  • Joon Van Hove, sjálfstætt starfandi leikjahönnuður
  • Steingerður Lóa Gunnarsdóttir, sjálfstætt starfandi leikjahönnuður og stundakennari við Háskólann í Reykjavík

Erindum verður streymt en í kjölfar erinda lýkur streyminu og opnað verður fyrir umræður meðal viðstaddra.CCP býður viðstöddum upp á kaffi.

 

Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG) stendur að fundaröðinni Samtal um skapandi greinar í samstarfi við CCP. Stofnaðilar RSSG eru Háskóli Íslands, Listaháskóli Íslands, Háskólinn á Bifröst, Háskólinn á Akureyri og Háskólinn á Hólum. 

Aðrir viðburðir

: ?>