Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Samhengi: Lóðrétt hljómekra // Jesper Pedersen

Samhengi // Hádegisfyrirlestur  20.2.26 – 12:15-13:00 //  Dynjandi, Skipholt 31, 105 Reykjavík

Samhengi býður velkominn Jesper Pedersen föstudaginn 20. febrúar með fyrirlestur um hljóðinnsetninguna Lóðrétt hljómekra.

Viðburðurinn fer fram í Dynjanda, húsi Tónlistardeildar, Skipholti 31.
Öll hjartanlega velkomin.

Á fyrirlestrinum mun Jesper Pedersen fjalla um hljóðinnsetninguna Lóðrétt hljómekra, sem sýnd var á Myrkum músíkdögum í Grófarhúsinu. Lóðrétt hljómekra er fjölrása hljóðinnsetning fyrir hátalara og söngskálar, sem er hönnuð fyrir stigagang. Hljóðið úr söngskálunum teygir sig yfir allan stigaganginn og myndar hljóðrænar tengingar á milli hæða hússins. Hlustendum gefst tækifæri til að upplifa rýmið á nýjan hátt, í formi lóðréttrar hljómekru sem býður gestum sínum til einstakrar nærveru og djúprar hlustunar.

 

Jesper Pedersen er tónskáld, hljóðlistamaður og kennari sem sérhæfir sig í hljóðgervlum, rafmiðlum og tilraunatónlist. Hann kennir nýmiðlatónsmíðar við Listaháskóla Íslands og hefur komið víða fram með eigin verkum sem og í samstarfi við aðra listamenn. Verk hans kanna tengsl milli tækni, rýmis og skynjunar og skapa einstaka hljóðupplifun fyrir áhorfendur.

https://jesper.is

Aðrir viðburðir

: ?>