Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Samhengi // Hádegisfyrirlestur  10.4.26 – 12:15-13:00

Samhengi býður velkomin raftónlistarhljómsveitina sideproject föstudaginn 10. apríl með fyrirlesturinn sideproject – hardcoresúpa. Á fyrirlestrinum munu þeir taka fyrir þær hugmyndir sem hafa mótað þá, nálganir í lifandi flutningi á raftónlist, stefnur og strauma í samtíma raftónlist og samstarf þeirra við plötuútgáfuna SVBKVLT sem spratt upp úr raftónlistarsenu Shanghai árið 2013.

Viðburðurinn fer fram í Dynjanda, húsi Tónlistardeildar, Skipholti 31.

Öll hjartanlega velkomin!

//

Samhengi welcomes the electronic music band sideproject on Friday, April 10th with the lecture sideproject – hardcoresúpa.  In the lecture they will cover some ideas that have impacted their music, their approach to live performance and their collaboration with Manchester-Shanghai based.
The event will take place at Dynjandi, home of the Music Department, Skipholti 31.

Everyone is warmly welcome!

sideproject er íslensk raftónlistarhljómsveit skipuð af Atla Finnssyni, Hjálmari Karlssyni og Örlygi Steinari Arlands. Hljómsveitin var stofnuð árið 2018 og tóku meðlimir sveitarinnar allir þátt í stofnun listasamlagsins post-dreifingu. Á seinustu sjö árum gaf hljómsveitin út þrjár plötur, tvær tónleikaplötur og nokkrar smáskífur. Auk þess komu þeir að taktforritun fyrir Björk á plötunni Fossora árið 2022, hituðu upp fyrir Autechre árið 2025 og spiluðu á tónlistarhátíðum á borð við Unsound í Kraków, Primavera Sound í Barcelona og Nyege Nyege Festival í Úganda. Í gegnum árin hefur áhugi þeirra á tónleikaflutningi aukist og stór hluti af þeirra verkferli snúist um það að finna sína eigin rödd í lifandi flutningi. Tónlist sideproject einkennist af þéttum og síbreytilegum töktum og lifandi laglínum. Tónlistin dregur áhrif frá ýmsum stefnum og straumum á borð við tilraunadanstónlist, gqom, jungle, uk-bass, bebop og pönktónlist en einkennist mögulega mest af því að fara þvert á stefnur. 

//

sideproject is an icelandic electronic music trio that has been active since 2018. The band is

made up of Atli Finnsson, Hjálmar Karlsson and Örlygur Steinar Arnalds. They all took part in the founding of post-dreifing, an artist collective whose goal is to build visibility and self-sufficiency for artists through collaboration. In the last seven years they’ve released three LP’s, two live albums and a handful of EP’s. Alongside that they contributed beat-programming to Björk’s latest album Fossora (2022), warmed up for Autechre in 2025 and played various festivals including Unsound in Kraków, Primavera Sound Barcelona and Nyege Nyege Festival in Uganda. In the years they’ve been active their focus has slowly shifted towards live performance and the challenges posed by performing electronic music. Their music is characterised by dense and evolving beats and energetic synths. Their music is tricky to define but draws inspiration from various genres such as experimental dance music, gqom, jungle, uk-bass, bebop and punk.

Aðrir viðburðir

: ?>