Verið velkomin á fjórða hádegisfyrirlestur haustannarinnar í Myndlistardeild.
Sigurður Guðjónsson myndlistarmaður er þekktastur fyrir tímatengd verk þar sem mynd, hljóð og rými mynda órofa heild. Hann beinir einkum sjónum að virkni margs konar tækjabúnaðar sem og rannsóknum á efnisheiminum. Með áhrifamiklum hætti, býr listamaðurinn til flókin, marglaga verk þar sem áhorfandinn er lokkaður inn í heim sefjandi endurtekningar, takts og reglu og mörk hins mannlega og vélræna verða óljós.
Sigurður Guðjónsson var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum 2022. Hann hlaut Íslensku myndlistarverðlaunin 2018 fyrir sýninguna Innljós.
Sigurður hefur kennt við Listaháskóla Íslands sem stundakennari frá árinu 2004 og var ráðinn prófessor við Myndlistardeild árið 2025. Hann stundaði nám við Listaháskóla Íslands og við Listakademíuna í Vínarborg. Verk hans er að finna í opinberum söfnum og einkasöfnum.
Öll velkomin!
//
Sigurður Guðjónsson is a visual artist best known for his time-based media works where image, sound and space form an unbroken whole. His research focuses particularly on the function of a variety of technical equipment, where the viewer is lured into a world of soothing repetition, rhythm and order, and the boundaries of the human and the mechanical become blurred.
Sigurður Guðjónsson represented Iceland at the 59th Venice Biennale 2022. He was awarded the Icelandic Art Prize for Visual Artist of the Year in 2018 for his exhibition Inlight.
Sigurður has taught at the Iceland University of the Arts as a part-time lecturer since 2004 and was appointed Professor at the Department of Fine Art in 2025. He studied at the Iceland University of the Arts and the Academy of Fine Arts in Vienna. His works are included in public and private collections.
All welcome to this fourth lecture in the Fine Art Department open lecture series this autumn.