Dagsetning
16. október 2025 – 22. október 2025
Tími
16:00
Staðsetning
Epal, Skeifan
Deild
Hönnunardeild
Þriðja árs nemendur fatahönnunarbrautar Listaháskóla Íslands sýna afrakstur verkefnisins Kveikjur, sem unnið var í samstarfi við Epal og Kvadrat og kennt af fatahönnuðinum Sól Hansdóttur.
Nemendur fengu gefins textílefni frá Kvadrat, sem alla jafna eru notuð í húsgagna- og innanhúshönnun. Hver og einn valdi sér efni til að vinna út frá og leyfði því að leiða sig áfram í gegnum hönnunarferlið, hugmyndavinnu og tilraunir.
Sýningaropnunin fer fram á opnu húsi í tilefni 50 ára afmælisárs Epal

Facebook event