Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Leiðarlag / Soil Horizon  

Sýningin Leiðarlag í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar er samsýning fyrsta árs meistaranema í myndlist við Listaháskóla Íslands. Sýningarstjórar eru meistaranemar í sýningargerð, miðlun og sýningarstjórnun við Háskóla Íslands.

Listasafnið stendur á Laugarnestanga, svæði sem býr yfir ríkri sögu og fjölbreyttum menningarminjum sem hafa mótast í gegnum aldirnar. Titill sýningarinnar vísar í fyrirbærið leiðarlög; afmörkuð, lárétt jarðlög sem liggja samsíða yfirborði jarðar og einkennast hvert um sig af tilteknum eðlis-, efna- og líffræðilegum eiginleikum. Hér endurspeglast ferli líffræðilegra umbreytinga í sögulegum jarðlögum Laugarness, þar sem söguskeiðin hlaðast upp hvert ofan á annað eins og jarðvegur sem byggist upp með tímanum; lag fyrir lag. Verk sýningarinnar marka nýtt stig í þessu lagskipta ferli. Sýningin skapar rými fyrir ýmsa miðla og tjáningarform listamannanna sem allir koma  úr ólíkum áttum. Listamennirnir bregðast við forverum sínum og skilja eftir eigin spor í minningum síbreytilegs jarðvegsins.

Boðið verður upp á listamannaspjall sunnudagana 22. og 29. mars kl 14:00. Einnig verður boðið upp á sögugöngu um Laugarnes laugardaginn 28. mars, undir leiðsögn Þuru (Þuríðar Sigurðardóttur), söngkonu og myndlistarkonu. Lagt verður upp frá Listasafni Sigurjóns Ólafssonar klukkan 14:00. Í kjölfarið munu sýningarstjórar bjóða upp á leiðsögn um sýninguna.

Opnun: 20.03.2026 (17:00 – 19:00)

Sýningartími: 21.–22.03 & 28.–29.03 (13:00 – 17:00)

Staðsetning: Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga

Aðrir viðburðir

: ?>