Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Kristrún Ásta Arnfinnsdóttir
Einkasýning í Kubbnum
Opnun 27. nóvember 17:00 – 19:00
Opið á föstudaginn 28. nóvember sé þess óskað
——–
Á fimmtudaginn tekur Kristrún Tjörnina í Reykjavík fyrir. Rýnir í sundtökin; ótrúlega fimi og dýfingar. Skoðar hvernig vatnið gárar og glitrar. Sýnir kynlegar verur og ævintýraljóma í borginni. Reykjavíkurtjörn römmuð inn.
Kristrún er rómantísk, verður hrifin af viðfangsefnum sínum, haldin sannleiksást og drifin áfram af ríkri þörf til að skrásetja.
//
Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 25. september – 27. nóvember 2025.
Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Sirru Sigrúnar Sigurðardóttur. Kennarar Hekla Dögg Jónsdóttir og Styrmir Örn Guðmundsson.
Nánari upplýsingar um einkasýningaröðina má finna HÉR.