Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

ÍSLENSK-DANSKA TÓNSMÍÐAVERKEFNIÐ

ÍSLENSK-DANSKA TÓNSMÍÐAVERKEFNIÐ

Ellefu nemendur úr rytmísku námi við Tónlistarháskólann í Århus og Tónlistardeild LHÍ hafa undanfarna mánuði unnið að nýjum tónsmíðum fyrir strengjakvartett og sönghóp.

Hópurinn kom saman á Íslandi í vikunni og hefur unnið þétt saman að æfingum og útfærslu verkanna.

Auk tónskáldanna ellefu koma fram strengjakvartett frá Århus og íslensk-danskur sönghópur leiddur af söngvurum úr Ensemble Edge.

Stjórnandi er Mathias Skaarup Sørensen og listrænn stjórnandi verkefnisins er Jakob Buchanan.

Uppskerutónleikar fara fram í Háteigskirkju föstudaginn 6. mars kl. 20:00.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.

Verkefnið heldur áfram í Århus í apríl þar sem tónlistin verður flutt á ný.

Aðrir viðburðir

: ?>