Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Gleym mér ei | Söng­leikja­tón­leikar á síðdegi

Gleym mér ei er tónleikaröð söngnemenda við tónlistardeild Listaháskóla Íslands, haldin í samstarfi við Hörpu, veturinn 2025 – 2026. Tónleikar fara fram í Hörpuhorni, aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Á fyrstu tónleikum á nýju ári verður boðið upp á glæsilega söngleikjatónleika þar sem fram koma söngnemendur frá LHÍ og frá Háskólanum í Norður-Karólínu. Tónleikarnir eru nokkurs konar uppskeruveisla í kjölfar námskeiðs Ryan Driscoll við LHÍ. Fjölbreytt og lifandi dagskrá þar sem alþjóðleg samvinna og sköpun eru í forgrunni.

Meðleikur er í höndum Evu Þyri Hilmarsdóttur.

Tónleikarnir hefjast klukkan 15:30 og vara í um tvær klukkustundir.

Aðrir viðburðir

: ?>