Dagsetning
12. nóvember 2025
Tími
12:00–12:45
Staðsetning
Hörpuhorn
Deild
Tónlistardeild

Tónleikaröðin Gleym mér ei er fastur liður á hverju misseri. Efnisskráin fléttar saman fjölbreytt viðfangsefni hverju sinni, allt frá ástaróða til sársauka og sjúkdóma. Meðleikur er í höndum Matthildar Önnu Gísladóttur, píanóleikara.

Á lokatónleikum Gleym mér ei sameinast nemendur söng- og hljóðfæradeildar LHÍ og flytja íslensk sönglög úr smiðju tónskáldsins Sveinbjörns Sveinbjörnssonar.

Tónleikarnir fara allir fram kl. 12:00 í einstökum hljómi í Hörpuhorni í Hörpu.

Aðgangur er ókeypis og öll eru hjartanlega velkomin

Dagskrá

8.október – Úr ýmsum áttum
22.október – Óperur og söngleikir
5.nóvember – Sjúkdómar og sársauki
12.nóvember – Íslensk sönglög eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson