Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Aðalfundur Hollnemafélags Listaháskóla Íslands 2026
Aðalfundur Hollnemafélags Listaháskóla Íslands verður haldinn miðvikudaginn 15. apríl kl. 12:15-13:00 í Stakkahlíð 1.
Allir útskrifaðir nemendur Listaháskólans eiga sjálfkrafa aðild að félaginu. Jafnframt er útskrifuðum nemendum úr Myndlistar- og handíðarskólanum og Leiklistarskóla Íslands boðin aðild að félaginu.
Listaháskólinn leitar nú að einstaklingum meðal Hollnema sem hafa áhuga á að taka þátt í starfi félagsins og sitja í stjórn þess til eins árs í senn. Ekki er greitt fyrir setu í stjórn en áætlað vinnuframlag stjórnarmeðlima er seta 3-4 hádegisfunda á hverju skólaári (tímabil ágúst- maí). Fundir eru haldnir í aðalbyggingu skólans í Stakkahlíð 1 og er stjórn boðið upp á léttan hádegisverð.
Ákjósanlegt er að fulltrúar allra deilda myndi stjórn Hollnemafélagsins. Hafir þú áhuga á að bjóða þig fram til setu í stjórn Hollnemafélagsins sendu þá tölvupóst á hollnemafelag@lhi.is fyrir 8. apríl.
–
Starfsemi Hollnemafélagsins hefur verið með ýmsu móti frá því það var fyrst stofnað árið 2015. Meginmarkmið félagsins er að efla tengsl fyrrum nemenda við skólann og byggja upp innbyrðis tengslanet.
Síðustu ár hafa helstu verkefni félagsins snúið að móttöku nýnema þar sem Hollnemi flytur hvatningarræðu til nemenda og á útskrift þar sem útskriftarnemar eru boðnir velkomnir í hópinn. Þessi verkefni hafa orðið að kjarna starfsemi félagsins en vilji er til að efla starf Hollnemafélagsins enn frekar og ýmsar hugmyndir á borðinu um það með hvaða hætti hægt væri að skipuleggja starfið á fjölbreyttari hátt.
Ef félagsmenn vilja koma með lagabreytingartillögur skulu þær berast innan tveggja vikna og síðan verður dagskrá aðalfundarins með breytingartillögum send til félagsmanna 10 dögum fyrir aðalfund. Lög Hollnemafélagsins má finna á vefsíðu skólans og í Facebook hóp Hollnemafélagsins.
Við hvetjum félagsmenn til að mæta á aðalfundinn.