Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Lára Kristín Margrétardóttir

Fyrsti þáttur: bleika tíðnin

Hún myndar hjarta með höndunum, umvefur

hverfandi nafla á vaxandi vömb iðandi af lífi og

sver þar með eið eilífðrar ástar. Slöngulokkarnir og

glossið loforð um þrautseigju og styrk – hún er ekki

haltrandi prumpuvél með bakflæði heldur skapari:

frjósemisgyðja. Hún eyðir slitum og æðahnútum,

hvíslar:

„Það er ekki pláss fyrir ykkur í paradís

kraftaverksins!“ Hún er fullkomin eins og hún er.

//

First act: the pink frequency

She forms a heart with her hands, encircling a disap-

pearing navel on a growing bulge teeming with life,

thereby swearing an oath of eternal love. Her perfect

curls and shiny lip gloss a promise of perseverance and

strength – she’s not a limping fart machine with reflux

but a creator: a fertility goddess. She erases her stretch

marks and varicose veins, whispers: „There’s no room

for you in the paradise of miracles!“ She’s perfect just

the way she is.

 

Photos by: Sisters Lumiere