Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Fjölbreytt útskriftarhátíð hefur staðið yfir hjá Tónlistardeild LHÍ undanfarnar vikur, þar sem nemendur hafa komið fram í öflugri dagskrá sem undirstrikar fjölbreytni og metnað deildarinnar. Tónlistardeild er afar stolt af útskriftarnemendum sínum sem hafa sýnt sterka listræna sýn og fagmennsku í lokaverkefnum sínum.
Flestir viðburðanna fóru fram í Salnum Tónlistarhúsi, þar sem ómetanlegt samstarf hefur gefið nemendum tækifæri til að vaxa og kynnast faglegu tónlistarumhverfi. Við þökkum einnig Dansverkstæðinu og Smekkleysu kærlega fyrir hlýjar móttökur og dýrmætan stuðning við nemendur.
Lokahnykkur útskriftarhátíðarinnar verða tónleikar Rashelle Reyneveld í Kassanum, Laugarnesi þann 5. júní.

















