Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Útskriftarnemar í meistaranámi í arkitektúr (M.Arch) við Listaháskóla Íslands opnuðu á laugardag sýninguna Arkitektúr til samhygðar (e. Architectures for care) í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Sýningin stendur opin til 31. maí á opnunartíma Listasafns Íslands.
Sýningin markar lok meistaranámsins og gefur innsýn í fjölbreytt verkefni nemenda sem takast á við samtímann með áherslu á samfélagslega ábyrgð, umhyggju og nýjar leiðir til að hugsa um rými og arkitektúr. Verkefnin endurspegla persónulegar rannsóknir, gagnrýna nálgun og skapandi lausnir sem horfa til framtíðar.
Nemendur sem sýna: Eva Lind Elíasdóttir Jireh Joan Tolentino Kristrún Lárusdóttir Hunter María Þórólfsdóttir Svava Ragnarsdóttir Una Haraldsdóttir
Sýningarstjóri er Jan Dobrowolski
Myndir: Leifur Wilberg Orrason