Útskriftarathöfn Listaháskóla Íslands fer fram í Silfurbergi, Hörpu, laugardaginn 14. júní kl. 14:00.
Athugið: Útskriftarnemendur þurfa að mæta fyrr á deginum vegna æfinga.
Hér má sjá dagskrá nemenda fyrir daginn:
kl. 12:00 Æfing útskriftarnemenda
kl. 12:30 Hópmyndataka
kl. 13:45 Uppröðun
kl. 14:00-16:00 Útskriftarathöfn
Nánari upplýsingar hafa verið sendar í tölvupósti til allra nemenda.
Við viljum ítreka að vegna takmarkaðs sætapláss getur hver nemandi boðið að hámarki tveimur gestum á brautskráninguna.
Gott að vita
- Ljósmyndari tekur myndir úr athöfninni og verða myndirnar settar inn á síðu skólans og sendar nemendum í pósti.
- Ljósmyndakassi verður á svæðinu.
- Takið þátt í stemningunni á samfélagsmiðlum og merkið myndir með @iceland_university_of_the_arts .