Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuÖryggismyndavélar eru mikilvægur hlekkur í öryggiskerfi Listaháskóla Íslands. Reynslan sýnir að öryggismyndavélar hafa talsverðan fælingarmátt og geta verið ómetanlegar við að upplýsa þjófnaði og skemmdarverk. Þær eru hluti af þeirri viðleitni að verja eigur Listaháskóla Íslands, starfsmanna hans og stúdenta og bæta öryggi á háskólasvæðinu almennt.
Vöktunin fer fram á grundvelli lögmætra hagsmuna Listaháskóla Íslands í tengslum við eigna- og öryggisvörslu, sbr. 6. tölul. 9. gr. Laga nr. 90/2018 og f-lið 1. mgr. 6. gr. Reglugerðar (ESB) 2016/679. Ábyrgðaraðili vöktunarinnar er Listaháskóli Íslands.
Við notkun öryggismyndavéla verður að fylgja reglum nr. 50/2023 um rafræna vöktun. Engum gögnum er safnað um einstaklinga og engin gögn eru geymd lengur en í þrjátíu daga nema sérstök rök séu færð fyrir því.
Á vef persónuverndar má finna svör við algengum spurningum um öryggismyndavélar og reglur sem um þær gilda.
Það eru öryggismyndavélar við innganga allra bygginga háskólans og víða utanhúss.
Frekari upplýsingar um réttindi einstaklinga í tengslum við vöktun með öryggismyndavélum má nálgast hjá kerfisstjóra, Björgvin Þorgrímsson (bjorgvin@lhi.is) og persónuverndarfulltrúa Listaháskóla Íslands, Elínborg Jónsdóttir (bba-elinborg@lhi.is).