Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Jafnréttisáætlun

Decor overlay

Frá jafnrétti til inngildingar: Jafnréttisáætlun 2024-2028

Jafnréttisáætlunin nær til alls starfsfólks og allra nemenda Listaháskólans sem í sameiningu bera ábyrgð á að koma í veg fyrir mismunun og leggja sitt af mörkum til þess að skapa samfélag inngildingar og jafnræðis. 

  • Lagalegur grundvöllur

    Jafnréttisáætlun Listaháskóla Íslands 2025 – 2028 er í samræmi við stefnu LHÍ 2024 – 2028 og leggur til grundvallar jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrárinnar nr. 33/1944, sbr. lög nr. 97/1995. Jafnréttisáætlun LHÍ er byggð á lögum nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, lögum nr. 85/2018 um jafna meðferð utan vinnumarkaðar og lögum nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði. Einnig tekur jafnréttisáætlun Listaháskóla Íslands mið af ákvæðum laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sáttmála Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um grunnréttindi starfsmanna á vinnumarkaði og lögum nr. 80/2019 um kynrænt sjálfræði. Jafnréttisáætlunin er samin jafnt með nemendur, starfsfólk og stjórnendur í huga og er samþætting kynja- og jafnréttissjónarmiða lögð til grundvallar henni sbr. 30.gr. laga nr. 150/2020. 

    Í jafnréttisáætluninn eru sett fram markmið og skilgreindar aðgerðir sem eiga að tryggja starfsfólki lögboðin réttindi, eftir því sem við á, samkvæmt 6., 7. og 13. gr. laga nr. 150/2020. Þar er sérstaklega fjallað um launajafnrétti og samræmingu starfsskyldna og ábyrgðar gagnvart fjölskyldu óháð kyni. Auk þess eru tilgreind markmið og skilgreindar aðgerðir um það hvernig Listaháskóli Íslands sem menntastofnun uppfyllir 15. gr. laganna gagnvart nemendum. Í greininni kemur fram að samþætta eigi kynja- og jafnréttissjónarmið við alla stefnumótun og áætlanagerð í skólastarfi, að ekki megi mismuna kynjum í kennslu- og námsgögnum og að nemendur á öllum skólastigum skuli hljóta jafnréttis- og kynjafræðslu við hæfi.  

    Stjórnendur Listaháskóla Íslands skulu tryggja að störf sem laus eru til umsóknar standi opin jafnt konum, körlum og fólki með hlutlausa skráningu í þjóðskrá, samkvæmt 1. mgr. 12. gr. laga nr. 150/2020, sbr. þó 2. mgr 16. gr. Auk þess skal starfsfólk af öllum kynjum njóta sömu möguleika til endurmenntunar, símenntunar og starfsþjálfunar og til að sækja námskeið sem haldin eru til að auka hæfni í starfi eða til undirbúnings fyrir önnur störf, sbr. 12. gr sömu laga. 

    Listaháskóli Íslands hefur innleitt viðbragðsáætlun við einelti, kynbundinni áreitni, kynferðislegri áreitni og ofbeldi og er hana, ásamt eyðublaði fyrir tilkynningar, að finna á innri og ytri vefum skólans. 

  • 1. Nám og kennsla

    1.1 Nemendahópur skólans endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. 

    Markmið 1: Nemendahópur skólans skuli vera fjölbreyttur m.t.t. fötlunar, uppruna, hinseginleika og bakgrunns. 

    • Aðgerð: Ábyrgðaraðilar inntöku nýrra nemenda fái árlega fræðslu um fjölbreytileika samfélagsins.  
    • Ábyrgð: Deildarforsetar, fagstjórar, jafnréttisfulltrúi. 
    • Verklok: Viðvarandi, staðan metin í lok hverrar innritunar. 
    • Aðgerð: Upplýsingum um námið og inntökuferlið er deilt á fjölbreyttan og aðgengilegan hátt.  
    • Ábyrgð: Verkefnastjórar kynningamála, verkefnastjóri Opna Listaháskólans. 
    • Verklok: Metið á hverju hausti. 
    • Aðgerð: Opnar vinnustofur og stutt námskeið eru þróuð enn frekar til þess að koma til móts við ólíka hópa samfélagsins.  
    • Ábyrgð: Verkefnastjóri Opna Listaháskólans, deildarforsetar, jafnréttisfulltrúi. 
    • Verklok: Haust 2026. 
    • Aðgerð: Jafnréttisnefnd styður við undirbúning náms fyrir fólk með þroskahömlun.  
    • Ábyrgð: Jafnréttisnefnd, jafnréttisfulltrúi og aðstoðarrektor kennslu. 
    • Verklok: Viðvarandi á meðan á undirbúningi stendur. 

    Markmið 2: LHÍ búi yfir upplýsingum um samsetningu nemendahóps síns m.t.t. fjölbreytileika. 

    • Aðgerð: Leitað verður leiða til að safna upplýsingum um fjölbreytileika umsækjenda og nemenda.  
    • Ábyrgð: Jafnréttisfulltrúi, námsþjónusta. 
    • Verklok: 2026. 

    1.2. Aðgengi nemenda í öllu skólastarfi sé tryggt. 

    Markmið 1: Námið í LHÍ skal vera nemendamiðað. 

    • Aðgerð: Stuðningur við kennara til þess að mæta fjölbreyttum þörfum nemenda verður efldur.  
    • Ábyrgð: Kennsluþróunarstjóri, námsráðgjafi og jafnréttisfulltrúi. 
    • Verklok: Viðvarandi metið í upphafi hvers skólaárs og eftir þörfum. 
    • Aðgerð: Nýjir kennarar og stundakennarar fá fræðslu um nemendamiðað nám.  
    • Ábyrgð: Kennsluþróunarstjóri. 
    • Verklok: Janúar 2026. 

    Markmið 2: Stuðningsþjónusta sé í stöðugri þróun. 

    • Aðgerð: Námsráðgjafi og jafnréttisfulltrúi viðhalda samstarfi um þróun stuðningsþjónustu við nemendur.  
    • Ábyrgð: Námsráðgjafi, jafnréttisfulltrúi, nemendur. 
    • Verklok: Viðvarandi, reglulegir fundir. 

    Markmið 3: Efnislegt aðgengi nemenda verði bætt. 

    • Aðgerð: Leitað verður leiða til þess að tryggja að efnislegt umhverfi skólans sé aðgengilegt öllum nemendum.  
    • Ábyrgð: Umsjónarmaður fasteigna, þjónustufulltrúar, jafnréttisfulltrúi. 
    • Verklok: Við upphaf hvers skólaárs og viðvarandi. 

    Markmið 4: Stafrænt aðgengi nemenda verði bætt. 

    • Aðgerð: Upplýsingar um skólastarf annað en kennslu er deilt á fjölbreyttan og aðgengilegan hátt.  
    • Ábyrgð: Stúdentaráð, nemendafélög, fagstjórar, verkefnastjórar viðburða- og kynningarmála. 
    • Verklok: Haust 2025. 

    1.3 Námsefni og kennsluhættir endurspegli og taki mið af fjölbreytileika samfélagsins. 

    Markmið 1: Námið í LHÍ skal vera inngildandi. 

    • Aðgerð: Gerður verður inngildandi gátlisti fyrir fagstjóra og kennara.  
    • Ábyrgð: Kennsluþróunarstjóri, námsráðgjafi og jafnréttisfulltrúi. 
    • Verklok: Vor 2026. 
    • Aðgerð: Við reglubunda endurskoðun/gæðamat námsbrauta skal gætt að sjónarmiðum inngildingar.  
    • Ábyrgð: Aðstoðarrektor kennslu, deildarforsetar, fagstjórar. 
    • Verklok: Unnið samhliða reglubundnum endurskoðunum námsbrauta. 
    • Aðgerð: Við val á kennsluaðferðum er tryggt að allir nemendur geti verið fullir þátttakendur í náminu og upplifað sig velkomin.  
    • Ábyrgð: Fagstjórar, kennarar. 
    • Verklok: Við upphaf/skipulag hvers námskeiðs. 

    Markmið 2: Námsefni taki mið af fjölbreyttum sjónarhornum og endurspegli nútíma samfélög. 

    • Aðgerð: Við skipulagningu námskeiða huga kennarar að því að efnistök og námsefni samræmist stefnu skólans og jafnréttisáætlun þessari.  
    • Ábyrgð: Deildarforsetar, fagstjórar, akademískt starfsfólk. 
    • Verklok: Viðvarandi við skipulag og endurskoðun námskeiða og einstakra námsleiða. 
  • 2. Mannauður

    2.1. Mannauður LHÍ endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. 

    Markmið 1: Mannauður endurspegli fjölbreytileika almennt. 

    • Aðgerð: Að leitað sé leiða til þess að auglýsingar um laus störf nái til fjölbreytts hóps.  
    • Ábyrgð: Mannauðsstjóri og stjórnendur með mannaforráð. 
    • Verklok: 2025 og viðvarandi við hverja ráðningu. 
    • Aðgerð: Að forsendur jafnræðis og inngildingar séu hafðar til tilsjónar í verkferlum ráðninga.  
    • Ábyrgð: Mannauðsstjóri og stjórnendur með mannaforráð. 
    • Verklok: Vor 2026. 

    2.2. Jafnræðis sé gætt í öllum málum sem viðkoma mannauði. 

    Markmið 1: Í ráðum og nefndum sitji fjölbreyttur hópur starfsfólks. 

    • Aðgerð: Við samsetningu nefnda og ráða innan LHÍ skal leitað leiða til að tryggja sem mestan fjölbreytileika.  
    • Ábyrgð: Rektor, sviðstjóri háskólaþjónustu, aðstoðarrektorar, deildarforsetar. 
    • Verklok: Viðvarandi við skipun í nefndir og ráð. 

    Markmið 2: Jafnræðis sé gætt í ráðningarferlum. 

    • Aðgerð: Leitað skal leiða til að tryggja jafnræði í ráðningarferlum.  
    • Ábyrgð: Mannauðsstjóri, deildarforsetar og annað fólk með mannaforráð. 
    • Verklok: 2026. 

    Markmið 3: Sjónarmið inngildingar séu viðhöfð í öllum verkferlum innan LHÍ. 

    • Aðgerð: Við reglubundar endurskoðanir verkferla (s.s. gæðamat deilda) skal gætt að sjónarmiðum inngildingar.  
    • Ábyrgð: Ábyrgðaraðilar verkferla, jafnréttisfulltrúi og mannauðsstjóri. 
    • Verklok: Viðvarandi: Unnið samhliða reglubundnum endurskoðunum verkferla. 

    Markmið 4: Að jafnræði sé í launum og launakjörum starfsfólks. 

    • Aðgerð: Að jafnlaunavottun sé viðhaldið og framfylgt.  
    • Ábyrgð: Rektor og óháður aðili. 
    • Verklok: Viðvarandi (árlega). 

    Markmið 5: Að jafnræðis sé gætt í framgangi alls akademísks starfsfólks í starfi. 

    • Aðgerð: Leitað skal leiða til að tryggja jafnræði allra akademískra starfsmanna við innra mat rannsókna.  
    • Ábyrgð: Aðstoðarrektor rannsókna og Rannsóknarnefnd LHÍ. 
    • Verklok: Viðvarandi við innra mat rannsókna. 

    Markmið 6: Að jafnræði sé milli starfsfólks LHÍ varðandi samræmingu starfsskyldna og fjölskylduábyrgðar (samkvæmt 13. gr. laga nr. 150/2020). 

    • Aðgerð: Að vinnustaðurinn geri ráðstafanir til að gera starfsfólki kleift að samræma starfsskyldur sínar og ábyrgð gagnvart fjölskyldu, óháð kyni.  
    • Ábyrgð: Mannauðsstjóri og stjórnendur með mannaforráð. 
    • Verklok: Viðvarandi. 

    Markmið 7: Að tryggt sé að allt starfsfólk, óháð kyni, njóti sömu möguleika til endurmenntunar, símenntunar og starfsþjálfunar (samkvæmt 12. gr laga nr. 150/2020). 

    • Aðgerð: Að starfsþróun og þjálfun verði í samræmi við mannauðsstefnu LHÍ.  
    • Ábyrgð: Mannauðsstjóri og aðrir stjórnendur með mannaforráð. 
    • Verklok: Viðvarandi. 
  • 3. Jafnréttismenning

    3.1. Aukinn sýnileiki jafnréttismála innan skólans. 

    Markmið 1: Jafnréttismál skulu vera sýnileg í hversdegi starfsfólks og nemenda. 

    • Aðgerð: Jafnréttisnefnd kynnir störf sín í nýnemaviku.  
    • Ábyrgð: Jafnréttisnefnd. 
    • Verklok: Á hverju hausti, 2025, 2026, 2027. 
    • Aðgerð: Rafrænn sýnileiki jafnréttismála aukinn.  
    • Ábyrgð: Efni; Jafnréttisfulltrúi, jafnréttisnefnd og stúdentaráð. Birting; Tölvunefnd, ritnefnd Uglu. 
    • Verklok: Viðvarandi en í byrjun hverrar annar er hún skipulögð. 
    • Aðgerð: Fundinn verður farvegur fyrir ábendingar og tillögur til jafnréttisnefndar sem er sýnilegur á heimasíðu, sem boðið er upp á í Uglu og í raunheimum.  
    • Ábyrgð: Jafnréttisnefnd, Ritnefnd Uglu, kynningarstjóri, kerfisstjóri. 
    • Verklok: Áramót 2025-26. 
    • Aðgerð: Þátttaka LHÍ í Jafnréttisdögum háskólanna, sem eru haldnir árlega.  
    • Ábyrgð: Jafnréttisnefnd, Jafnréttisfulltrúi, viðburðastjóri. 
    • Verklok: 2026, 2027 og 2028. 
    • Aðgerð: Viðbragðsáætlun LHÍ við einelti, kynbundinni áreitni, kynferðislegri áreitni og ofbeldi verði kynnt nýju starfsfólki og nýnemum þegar þau hefja störf eða nám við skólann.  
    • Ábyrgð: Mannauðsstjóri og annað starfsfólk sem kemur að móttöku nýs starfsfólks og nýnema. 
    • Verklok: Starfsfólk: Viðvarandi við hverja nýja ráðningu. Nemendur: Á nýnemadögum á hverju hausti 2025, 2026 og 2027. 

    3.2. Framþróun í umræðu um jafnréttismál og inngildingu. 

    Markmið 1: Að allt starfsfólk sé þátttakendur í samtali um stefnumótun og þróun LHÍ. 

    • Aðgerð: Að öllu starfsfólki skólans sé boðið í samtal þegar unnið er að stefnumótun og þróun LHÍ.  
    • Ábyrgð: Rektor, framkvæmdastjórn. 
    • Verklok: Viðvarandi. 

    Markmið 2: Að styrkja rödd nemenda í umræðunni um jafnréttismál og inngildingu. 

    • Aðgerð: Að hvetja nemendur/stúdentaráð til að stofna jafnréttisfélag stúdenta.  
    • Ábyrgð: Stúdentaráð, jafnréttisnefnd og jafnréttisfulltrúi. 
    • Verklok: Haust 2025. 

    Markmið 3: Að stækka samtalið um jafnréttismál og inngildingu innan skólasamfélagsins. 

    • Aðgerð: Jafnréttisnefnd býður nemendum og starfsfólki til samtals um jafnréttismál.  
    • Ábyrgð: Jafnréttisnefnd, jafnréttisfulltrúi, jafnréttisfélag stúdenta/stúdentaráð, viðburðarstjóri. 
    • Verklok: 2025, 2026, 2027. 

    Markmið 4: Að auka þekkingu og efla virka þátttöku alls skólasamfélagsins í upplýstu samtali um jafnræði, fjölbreytileika og inngildingu. 

    • Aðgerð: Mótað verður skipulag til söfnunar og miðlunar upplýsinga um jafnréttismál innan skólans.  
    • Ábyrgð: Jafnréttisnefnd, jafnréttisfulltrúi, deildarforsetar og mannauðsstjóri. 
    • Verklok: Vor 2026. 
    • Aðgerð: Jafnréttisnefnd sækir sér fræðslu um nýjustu hugmyndir og rannsóknir um jafnræði, fjölbreytileika og inngildingu.  
    • Ábyrgð: Jafnréttisnefnd. 
    • Verklok: Viðvarandi, skipulagt í byrjun hverrar annar 2025, 2026, 2027, 2028. 
    • Aðgerð: Starfsfólki verður boðið upp á fræðslu um jafnræði, fjölbreytileika og inngildingu á hverri önn.  
    • Ábyrgð: Rektor, jafnréttisfulltrúi, mannauðsstjóri. 
    • Verklok: Viðvarandi á hverri önn 2025, 2026, 2027, 2028. 
    • Aðgerð: Að Jafnréttisdagar Háskólanna verði vettvangur fyrir opið og upplýst samtal um inngildingu, fjölbreytileika og jafnræði, innan LHÍ sem utan.  
    • Ábyrgð: Jafnréttisfulltrúi og viðburðastjóri, rannsóknarnefnd, með stuðningi jafnréttisnefndar. 
    • Verklok: Viðvarandi á hverju ári, 2026, 2027 og 2028. 
    • Aðgerð: Unnið verður að mótun jafnréttis- og kynjafræðslu við hæfi fyrir nemendur.  
    • Ábyrgð: Jafnréttisfulltrúi, kennsluþróunarstjóri og stúdentaráð/jafnréttisfélag stúdenta. 
    • Verklok: Fyrir vinnslu næstu jafnréttisáætlunar 2027.