Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Um höfunda

  • Þræðir - Tölublað 9

Um höfunda

Um höfunda

 

Angela Snæfellsjökuls Rawlings 

Dr. Angela Snæfellsjökuls Rawlings is a Canadian-Icelandic interdisciplinary artist-researcher who works with languages as dominant exploratory material. Rawlings’ books include Wide slumber for lepidopterists (Coach House Books, 2006), Gibber (online, 2012), o w n (CUE BOOKS, 2015), si tu (MaMa Multimedijalni Institut, 2017), and Sound of Mull (Laboratory for Aesthetics and Ecology, 2019). In 2022, Rawlings co-curated SPHERE Festival for the Canadian National Arts Centre’s Orchestra in partnership with the Canadian Museum of Nature, Royal Danish Library, and Nordic Bridges. In 2024, Rawlings founded Snæfellsjökul fyrir forseta, a collective bringing the rights of nature to Iceland through the nomination the glacier Snæfellsjökull as the country’s future president. 

Ari Frank Inguson 

Ari Frank Inguson lærði tónlist í Tónlistarskóla FÍH og Menntaskólanum í tónlist og lýkur nú rytmísku kennaranámi frá Listaháskóla Íslands. Auk þess er hann með BA gráðu í heimspeki frá Háskóla Íslands. Ari lítur á tónlistarsköpun sem þverfaglega iðkun þar sem tæknileg færni sameinast heimspekilegum og menningarlegum hugmyndum. Tónlist vinnur með músíkalskar einingar, hugtök, menningarlega strauma og hið mannlega ástand. Fyrir hann er tónlistarsköpun leið til að kanna og skilja veruleikann. Ari hefur gefið út nokkrar plötur undir nafninu Ari Árelíus og starfað með fjölbreyttum hópi listafólks sem gítarleikari og pródúser, þar á meðal Pale Moon og ATM trio. 

 

Atli Ingólfsson 

Atli Ingólfsson er prófessor í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands. 

 

Berglind María Tómasdóttir 

Berglind María hefur skipað sér í framvarðarsveit íslensks tónlistarfólks með tilraunagleði og forvitni að leiðarljósi. Hún er prófessor við Listaháskóla Íslands og hefur verið afar virk á tónlistarsenunni sem flytjandi og tónskáld, hérlendis og erlendis. Í verkum sínum leitast hún við að kanna ímyndir og erkitýpur sem og tónlist sem félagslegt fyrirbæri. Berglind hefur komið fram víðs vegar um heim, meðal annars í Ástralíu, Japan og Evrópu með Björk sem hluti af flautuseptettnum viibra. Hún hefur leikið inn á fjölda hljóðrita, til að mynda sem einleikari ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Vladimir Ashkenazy. Árið 2022 hlaut plata hennar, Ethereality, Íslensku tónlistarverðlaunin í flokki sígildrar og samtímatónlistar. Verk Berglindar hafa meðal annars verið pöntuð og flutt á vegum Flautusamtaka Bandaríkjanna (The National Flute Association), Norrænna músíkdaga, Myrkra músíkdaga, Minnesotaháskóla í Duluth og Listahátíðar í Reykjavík. Berglind stundaði nám í flautuleik við Tónlistarskólann í Reykjavík og Konunglega danska konservatoríið og lauk doktorsprófi í flutningi samtímatónlistar frá Kaliforníuháskóla í San Diego árið 2013. 

 

 

Einar Torfi Einarsson 

Einar Torfi Einarsson er tónskáld og prófessor við tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Hann nam tónsmíðar í Reykjavík, Amsterdam, Graz, og lauk doktorsprófi í tónsmíðum frá háskólanum í Huddersfield. 2013-2014 gegndi hann rannsóknarstöðu við Orpheus Institute í Belgíu. Tónlist hans hefur verið flutt á tónlistarhátíðum víða um heim og unnið til verðlauna í Hollandi og Austurríki. Rannsóknir hans hafa verið birtar í Perspectives of New Music og gefnar út af Leuven University Press. Þá hefur tónlist hans verið gefin út hjá KAIROS útgáfunni. 

 

Elín Gunnlaugsdóttir 

Elín Gunnlaugsdóttir er tónskáld og aðjúnkt við Listaháskóla Íslands. Hún nam tónsmíðar við Tónlistarskólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan 1993. Árið 1998 lauk hún framhaldsnámi í tónsmíðum frá Konunglega tónlistarháskólanum í Den Haag. Hún hefur unnið við tónsmíðar og kennslu frá því hún lauk námi. Verkaskrá Elínar samanstendur af kammerverkum, söngverkum og einnig hefur hún skrifað tónlistarævintýri fyrir börn. Elín hefur  unnið með list sína í ýmsum formum, sent verk á póstkortum, gefið út bókverk og tekið þátt í myndlistarsýningum. Verk Elínar hafa verið flutt bæði hér heima og erlendis. 

 

Linda Björg Guðmundsdóttir 

Linda Björg Guðmundsdóttir hefur starfað sem þjónustu- og tæknifulltrúi í tónlistardeild Listaháskóla Íslands frá haustönn 2018. Hún útskrifaðist úr skapandi tónlistarmiðlun árið 2014 hjá Listaháskóla Íslands og kláraði hljóðtækni hjá Stúdíó Sýrlandi árið 2015. Linda vann sem tækni- og hljóðmaður hjá Hörpu árin 2016 og 2017. 

 

 

Rachel Beetz 

Composer, flutist, and improviser, Rachel Beetz explores presence through sound and listening. Her works recreate physical atmospheres based on her deep listening adventures in the wild, exploring hidden worlds of nature and machines. Combining experimental field recordings and electronically modified flutes, her works examine community, environmentalism, and women’s work through sound, textiles, and lighting. Her projects have been featured in concert halls and galleries in Australia, Iceland, India, the United Kingdom, and the United States. You can hear her on Orenda, Blue Griffin, iikki, and Neuma record labels. She is currently a co-director of Populist Records. 

 

Rebekka Blöndal 

Rebekka Blöndal er tónlistarkona og þjóðfræðingur. Hún lærði tónlist í Söngskólanum í Reykjavík og tók þar Grunnpróf en lærði einnig jazz söng við Tónlistarskóla FÍH og MÍT og útskrifaðist þaðan vorið 2019. Rebekka stundar nú nám við Listaháskóla Íslands á rytmískri kennarabraut og útskrifast þaðan vorið 2025. Rebekka er einnig með BA gráðu frá Háskóla Íslands í Þjóðfræði, með áherslu á Kynjafræði og er einnig með MA próf í blaða- og fréttamennsku. Rebekka hlaut Íslensku Tónlistarverðlaunin fyrir söng ársins í flokki jazz tónlistar árið 2022 en hún gaf einnig út sóló plötuna sína það sama ár. Rebekka hefur unnið með fjölbreyttum hópi tónlistarfólks og staðið fyrir ýmsum tónleikaverkefnum. 

 

 

Sigurður Halldórsson 

Sigurður Halldórsson stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og Guildhall School of Music and Drama í London.  Hann hefur fengist við fjölbreytta tónlistarstíla allt frá miðöldum til nútímans og starfar m.a. með Caput hópnum, Voces Thules, Camerarctica, Skálholtskvartettinum og Symphonia Angelica og hefur komið víða fram sem einleikari. Sigurður var listrænn stjórnandi Sumartónleika í Skálholtskirkju frá 2004 til 2014. Hann starfar sem prófessor við Listaháskóla Íslands þar sem hann stýrir alþjóðlega NAIP meistaranáminu (New Audiences and Innovative Practice). 

 

 

Tumi Árnason 

Tumi Árnason er tónskáld og saxófónleikari sem er nú að ljúka tónsmíðanámi við Listaháskóla Íslands. Hann hefur undir eigin nafni gefið út plötuna Hlýnun, með kvartett sínum skipuðum Magnúsi Jóhanni, Skúla Sverrissyni og Magnúsi Trygvasyni Eliassen, en hún var valin tónsmíð ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2022. Hann hefur einnig gefið út tvær plötur af dúettum með Magnúsi Trygvasyni Eliassen, nú síðast Gleypir tígur gleypir ljón árið 2023. Þess utan hefur hann leikið inn á aragrúa hljómplatna sem flytjandi með tónlistarfólki úr ýmsum áttum. Tumi hefur komið að kvikmynda- og leikhústónlist bæði sem flytjandi og tónskáld, og samdi síðast tónlist fyrir leikverkið Ást Fedru eftir Söruh Kane sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu haustið 2023. 

 

 

Þorbjörg Daphne Hall 

Þorbjörg Daphne Hall er prófessor við tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Hún lauk doktorprófi frá Háskólanum í Liverpool 2019 þar sem hún fjallaði um togstreitu milli hinna ólíku frásagna um „hið íslenska“ í dægurtónlist á Íslandi nútímans. Þorbjörg leiðir Building Bridges Through Collaboration (Byggjum brýr með samvinnu) sem er þriggja ára rannsóknarverkefni, sem styrkt er af Rannsóknarsjóði, sem skoðar starfsemi og aðferðafræði MetamorPhonics sem er dæmi um samfélagsmiðað tónlistarverkefni. Samhliða því vinnur Þorbjörg að bók um íslensku tónlistarsenuna sem mun koma út hjá Bloomsbury og rannsóknarverkefni um íslenska jazztónlist (1930-2010) í samvinnu við Ásbjörgu Jónsdóttur. Hún ritstýrði bókinni Sounds Icelandic sem kom út hjá Equinox Publishing 2017 ásamt Nicola Dibben, Árna Heimi Ingólfssyni og Tony Michell. Þorbjörg hefur gefið út greinar og haldið fyrirlestra á alþjóðlegum ráðstefnum um íslenska tónlist, tónlist og þjóðerniskennd, kvikmyndina Heima eftir Sigur Rós og um tónlist í Kristjaníu í Kaupmannahöfn. Hún hefur verið einn af ritstjórum Þráða, tímariti tónlistardeildar LHÍ frá 2016. 

 

Þórbergur Bollason 

Þórbergur Bollason er tónskáld sem útskrifaðist með bakkalárgráðu í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands vorið 2023. Hann er á leið í meistaranám í tónsmíðum við Grieg-akademíuna í Bergen haustið 2024 og er auk þess í sendinefnd Íslands á Ung Nordisk Musik í Örebro sumarið 2024. Auk tónsmíðanna hefur Þórbergur bakgrunn í píanóleik, kennslu og stjórnun. Árið 2020 lauk hann framhaldsprófi í klassískum píanóleik við Menntaskóla í tónlist undir handleiðslu Þóru Fríðu Sæmundsdóttur. Veturinn 2023-24 hefur Þórbergur verið í námi í píanóleik og kennslufræði við Listaháskóla Íslands, í klassískum píanóleik hjá Peter Maté og Eddu Erlendsdóttur, og rythmískum píanóleik hjá Sunnu Gunnlaugsdóttur. Þórbergur hefur einnig lært undirstöðuatriði stjórnunar hjá Gunnsteini Ólafssyni og Magnúsi Ragnarssyni og hefur stjórnað opinberum flutningi bæði á kammer- og kórverkum. Vorið 2024 var hann auk þess meðlimur Hljómsveitarstjóraakademíu Sinfóníuhljómsveitar Íslands þar sem hann stjórnaði SÍ á tónleikum hljómsveitarinnar ásamt öðrum nemendum akademíunnar. 

 

Úr sama tölublaði