Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Skólasetning og nýnemadagar

  • 11.ágúst 2025

Listaháskólinn býður nýnema hjartanlega velkomin á skólasetningu Listaháskóla Íslands mánudaginn 18. ágúst, Stakkahlíð 1, kl. 10:00.

Inngangur er frá Háteigsvegi, næst Háteigsskóla.

Sameiginleg dagskrá verður fyrir nýnema í húsnæði LHÍ við Stakkahlíð en einnig fer fram sérstök móttaka og dagskrá í deildum skólans.

Sameiginlega dagskrá og dagskrá deilda má kynna sér hér: https://www.lhi.is/um-lhi/nynemadagar-2025/

Nýnemar eru minntir á að stofna aðgang að kerfum skólans og fylgjast með upplýsingum frá skólanum á tölvupósti skólans, Uglu og Canvas.

Leiðbeiningar um stofnun aðgangs hafa borist í tölvupósti á það netfang sem gefið var upp í umsókn um nám.