Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Setjum menninguna á dagskrá

  • 22.nóvember 2024

Listaháskóli Íslands og Bandalag íslenskra listamanna boðuðu til pallborðsumræðu um listir og menningu 17. nóvember síðastliðinn þar sem fundargestum gafst tækifæri að ræða við frambjóðendur um stefnumál þeirra í málaflokknum.

Fundarstjóri var Vigdís Jakobsdóttir, menningarráðgjafi og leikstjóri.

Frambjóðendur fengu spurningar sem þau voru beðin um að svara með já eða nei.
Hér má finna svör flokkana við spurningum.

Í komandi kosningum er nauðsynlegt að listir og menning séu í brennidepli, en beint framlag menningar og skapandi greina á Íslandi er um 3,5% af landsframleiðslu. Á sama tíma og listir og menning skapa störf og bæta samfélagið þá er heildarskerðing fjármagns á milli áranna 2024 og 2025 á sviði menningarmála 365,4 milljónir króna í fjárlagafrumvarpi næsta árs. Ef þessi þróun verður að veruleika mun það hafa neikvæðar afleiðingar á starfsumhverfi listamanna til frambúðar.

Menning og listir eru félagslegir margfaldarar og stuðla að bættri samfélagsvelferð, auka samheldni, lífsgæði og hamingju. Listaháskólinn menntar listamenn framtíðarinnar og því skiptir miklu máli að stjórnvöld framfylgi þeim ákvörðunum sem nú þegar hafa verið teknar varðandi að skólinn komist undir eitt þak sem allra fyrst. Dýnamískur Listaháskóli í faglegri aðstöðu undir einu þaki mun skila sér margfalt inn í menningarlíf landsmanna um ókomna framtíð.

Eftirfarandi frambjóðendur tóku þátt í umræðunni fyrir hönd sinna flokka:

Lilja Dögg Alfreðsdóttir (B – Framsóknarflokkur)
Jón Gnarr (C – Viðreisn)
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (D – Sjálfstæðisflokkur)
María Pétursdóttir (J – Sósíalistaflokkur)
Sigríður Andersen (M – Miðflokkur)
Halldóra Mogensen (P- Píratar)
Dabjört Hákonardóttir (S – Samfylking)
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (VG – Vinstri græn)

Hér fyrir neðan má sjá upptöku fundar í heild sinni: