Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Nemendur LHÍ með stuttmyndir á þremur alþjóðlegum kvikmyndahátíðum í haust

  • 23.september 2025

Nemendur Kvikmyndalistadeildar Listaháskóla Íslands koma víða við á alþjóðlegum kvikmyndavettvangi í haust. Stuttmyndir þeirra verða sýndar á RIFF  – Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík, á Nordisk Panorama í Malmö og á Nordic Talents í Kaupmannahöfn.

RIFF – Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík
(25. september – 5. október)

Á RIFF verða eftirfarandi stuttmyndir nemenda sýndar í keppnisflokknum Íslenskar stuttmyndir

Gullna Reglan

Leikstjórn og handrit: Telma Huld Jóhannesdóttir

Regluföst eldri kona sem vinnur á
bæjarskrifstofu fyllist bræði og brýtur
allar reglur þegar hún kemst að því að
framkvæmdir eru hafnar án þess að
byggingarleyfisumsókn hafi verið samþykkt.

Óð

Leikstjórn: Alfreð Hrafn Magnússon,
Handrit: Telma Huld Jóhannesdóttir

Gunnar og Aldís eru á leið í rómantíska
sveitaferð þegar þau verða vör við að einhver veitir þeim eftirför.


Sara

Leikstjórn og handrit: Steinar Þór Kristinsson

Þegar heimilishundurinn deyr þurfa feðgar
að grafa gröfina.


Marteinn

Leikstjórn: Brynjar Leó Hreiðarsson
Handrit: Hanna Hulda Hafþórsdóttir

Markþjálfinn Marteinn gerir allt sem hann
getur til að hjálpa óánægðum kúnna að
eignast vini.

Í flokknum Íslenskar nemastuttmyndir

Á milli línanna

Leikstjórn: Luis Carlos Aleman Furlan
Handrit: Elizabeth Karen Guarino

Blær, ungt og ástríðufullt leikskáld, er undir
miklu álagi við að setja upp frumverk sitt. Þegar Rósa, fyrrum vinkona hennar, kemur í áheyrnarprufu fyrir aðalhlutverkið fer línan á milli listar og lífs að þynnast og gömul sár rifjast upp

Nordisk Panorama
18.–23. september í Malmö

Á hátíðinni, sem helguð er norrænum stutt- og heimildamyndum, er stuttmyndin Sara eftir Steinar Þór Kristinsson (sjá hér að ofan) tilnefnd til verðlauna í flokknum Best Nordic Short Film.

Nordic Talents (september, Kaupmannahöfn)

Nordic Talents er árleg samkeppni fyrir nýútskrifaða kvikmyndagerðarnema á Norðurlöndunum. Markmið viðburðarins er að skapa vettvang til að efla tengslanet og samstarf meðal fagfólks á sviði kvikmyndagerðar.

Í ár tók Signý Rós Ólafsdóttir, nýútskrifuð úr Kvikmyndalistadeild LHÍ, þátt með verkefnið Ertu Guð, Afi? byggt á samnefndri barnabók Þorgríms Þráinssonar. Verkið var meðal tíu verkefna sem valin voru til þátttöku að þessu sinni.

LHÍ á RIFF

Auk nemenda eru fulltrúar úr hópi kennara Kvikmyndalistadeildar LHÍ á RIFF. Guðrún Elsa Bragadóttir, lektor og fagstjóri fræðigreina, stýrir pallborði á hátíðinni, Konur í kvikmyndum: Að brjóta múra og endurskrifa frásagnir (Women in Film: Breaking Barriers & Rewriting Narrative). Erlendur Sveinsson, aðjúnkt og fagstjóri, situr í dómnefnd í flokki erlendra stuttmynda og mun einnig leiða masterclass með Anton Corbijn og leiðbeina í Young Nordic Voices Think Tank.