Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Undanfarið hálft ár hafa nemendur í vöruhönnun og meistaranámi Master in Design and New Environments við LHÍ unnið ásamt fjórum nemendum við Elisava-hönnunarháskólann í Barcelona að rannsókn á upplýsingaóreiðu á mynddrifnum samfélagsmiðlum með sérstakri áherslu á loftslagsmál. Verkefnið sem nefnist Weaponised Weather rannsakar hvernig loftslagskvíði og afneitun loftslagsbreytinga helst í hendur við ímyndarsköpun og orðræðu áhrifavalda innan tiltekinna bergmálshella.
Verkefnið er hluti af alþjóðlegu samstarfsverkefni sjö evrópskra listaháskóla sem nefnist Climate Truth Crisis (CTC), þar sem ELIA (European League of Institutes of the Arts) er áttundi samstarfsaðilinn. CTC verkefnið er styrkt af Erasmus+ KA220 sjóðnum og hlaut 400.000 evru styrk árið 2024 til þriggja ára. Markmið verkefnisins er að efla unga hönnuði í að greina upplýsingaóreiðu og takast á við áhrif hennar, með sérstakri áherslu á loftslagsmál.
Þriðjudaginn 5. maí síðastliðinn kynntu nemendur fyrstu niðurstöður verkefnisins á alþjóðlegri ráðstefnu vísinda- og tæknifræða í Graz og fimmtudaginn 7. maí stóðu þau fyrir vinnusmiðju við Elisava í Barcelona. Þátttakendur í vinnusmiðjunni komu úr öðrum þátttökuskólum verkefnisins, en öll vikan er helguð þjálfun nemenda undir merkjum CTC.
Vinnusmiðjan markar tímamót í þróun verkefnisins sem hlaut nýverið rausnarlegan styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna sem styður við áframhaldandi vinnu nemenda í 12 mannmánuði. Í sumar heldur verkefnaþróunin áfram með áherslu á greiningu og framleiðslu mynddrifins efnis fyrir samfélagsmiðla, gerð hlaðvarpsþátta, þróun vinnustofu og skrifum á bókarkafla fyrir bók sem væntanleg er á vegum verkefnisins.
Þátttakendur í verkefninu Weaponised Weather eru Dorothea Olesen Halldórsdóttir, Helga Thors, Kjartan Thors Hagedorn-Olsen og Max Greiner fyrir hönd LHÍ og Nuria Sánchez Garcia, Aina Garcia Almirón, Maria Martin Juan og Laia Pascual Llena fyrir hönd ELISAVA. Leiðbeinendur verkefnisins eru Marteinn Sindri Jónsson, dósent og fagstjóri fræða við hönnunardeild LHÍ og Saúl Baeza, fagstjóri Master in Design for Emergent Futures (MDEF) við Elisava. Aðrir fulltrúar LHÍ í CTC eru Björg Stefánsdóttir forstöðumaður alþjóðaskrifstofu. Hrefna Sigurðardóttir, lektor í grafískri hönnun, Katrín Ólína Pétursdóttir deildarforseti hönnunardeildar og Þóra Einarsdóttir aðstoðarrektor náms og kennslu.
Ljósmynd: Ardila