Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Tónsmíðanám í LHÍ er þrískipt námsleið sem miðar að því að mennta nemendur í tækni og aðferðum tónsmíða jafnt í samtíma sem í stærra fræðilegu samhengi. Hér gefast víðtæk tækifæri til listrænnar sérhæfingar á háskólastigi, og stuðlar námið að mótun, eflingu og dýpkun listrænnar sýnar hvers og eins nemanda.
Um námið:
Tónsmíðar BA er þriggja ára bakkalárnám (BA) sem skiptist í þrjú kjörsvið með tveimur mismunandi inntökuleiðum:
Nemendur sækja um námið með kjörsviðin Tónsmíðar á opnu svæði, Tónsmíðar og -fræði eða Tónsmíðar rafmiðla í huga. Fyrsta árið er sameiginlegt á kjörsviðunum Tónsmíðar á opnu svæði og Tónsmíðar og -fræði, og geta nemendur þeirra því tekið afstöðu til þess hvort þau vilji skipta um kjörsvið í lok 1. árs.
Eftir því sem námið þróast fá nemendur aukið svigrúm til að sækja námskeið og afla sér þekkingar utan þess kjörsviðs sem þeir skráðu sig í upphaflega.
Uppbygging náms:
Á öllum kjörsviðum er sjónum beint að tónsmíðaaðferðum 20. og 21. aldar, þó með viðspyrnu í hefðbundinni tón-, hljóm- og hljóðfræði. Þá er hægt að sækjast eftir samvinnu með nemendum annarra deilda Listaháskólans, t.d. í fjölbreyttum verkefnum innan annarra deilda, svo sem sviðslista-, kvikmyndalista- og hönnunardeilda.
Á kjörsviðinu Tónsmíðar og -fræði liggur nótnaritun til grundvallar námsins. Nemendur læra tónfræði, tónbókmenntir og hljóðfærafræði en er jafnframt gefin innsýn í nýja hljóðfæratækni og heim raftónlistar. Fræðanámskeið endurspegla fjölbreytt tónmál, tónsmíðatækni og hugmynda- og fagurfræði 20. og 21. aldar. Nemendur vinna náið með hljóðfæra- og söngnemendum deildarinnar og það samstarf raungerist á brautartónleikum sem haldnir eru í lok hverrar annar. Þegar líður á námið fá nemendur að semja fyrir, og vinna með, atvinnutónlistarfólki sem hefur sérhæft sig í flutningi nýrrar tónlistar.
Kjörsviðið Tónsmíðar á opnu svæði býður nemendum upp á frekara svigrúm til samstarfs og rannsókna innan tónsmíða. Þá kynnast nemendur tilraunatónlist og aðferðum þvert á listgreinar. Enn fremur er nemendum boðið upp á að velja námskeið í tónsmíðum rafmiðla eða í öðrum deildum skólans eftir áhugasviði. Nemendur vinna náið með hljóðfæra- og söngnemendum deildarinnar og það samstarf raungerist á brautartónleikum sem haldnir eru í lok hverrar annar. Þegar líður á námið fá nemendur að semja fyrir, og vinna með, atvinnutónlistarfólki sem hefur sérhæft sig í flutningi nýrrar tónlistar.
Á kjörsviðinu Tónsmíðar rafmiðla læra nemendur undirstöður hljóðhönnunar, hljóðfræði og tónlistarforritunar. Í hóptímum og einkatímum tónsmíða er lögð áhersla á tónsmíðaaðferðir raf- og tölvutónlistar. Jafnframt eru ólíkir möguleikar í ritun, gagnvirkni og miðlun tónlistar rannsakaðir, auk þess sem áhersla er lögð á samstarf við aðra nemendur og færni í flutningi, sem raungerist á brautartónleikum í lok hverrar annar.
Að loknu námi:
Námi í tónsmíðum er ætlað að veita nemendum nauðsynlega undirstöðu til að sækja áframhaldandi nám á meistarastigi jafnt við Listaháskóla Íslands sem erlenda háskóla. Þá geta nemendur sem kjósa að einbeita sér að kennslu innritast í meistaranám í listkennslu við LHÍ (MA/M.Mus.Ed(MT)).
Umsókn um nám í Listaháskóla Íslands er fyllt út í umsóknargátt
Umsóknarferlið er í tveimur skrefum: í fyrra skrefinu er umsóknin fyllt út með fylgigögnum og umsóknargjald er greitt. Seinna skrefið er inntökuferli.
Ef fjöldi umsækjenda sem standast inntökukröfur námsleiða er undir lágmarksviðmiðum verður ekki tekið inn á námsleið fyrir komandi skólaár. Eru umsækjendur upplýstir um slíkt eins fljótt og auðið er og skrásetningargjald endurgreitt, hafi það verið greitt.
14. janúar 2026
13. apríl 2026
Maí / júní 2026
Eftirfarandi fylgiskjöl skulu fylgja umsókn bakkalárnáms í tónsmíðum:
Í kynningarbréfi tekur umsækjandi meðal annars fram hver er hvati umsóknar í viðkomandi námsleið, og hvernig umsækjandi sér fyrir sér að nýta námið.
Umsækjendur um nám í tónsmíðum skulu skila inn rafrænni ferilmöppu sem hlaðið er upp inn í umsóknargáttinni.
Umsækjendur í kjörsviðin Tónsmíðar og – fræði og Tónsmíðar á opnu svæði skila inn tónlist á nótum auk hljóðdæma þar sem það á við.
Umsækjendur í kjörsviðið Tónsmíðar rafmiðla þurfa einungis að skila hljóðdæmum. Einnig skal fylgja stutt skrifleg lýsing á verkferlum/tónsmíðaaðferðum og innblæstri sem liggja bakvið hljóðdæmin.
Umsækjendur geta sent inn tengla af tónlist og tónlistarflutningi.
Inntökuferlið fer fram í þremur þrepum:
ATH síðan er í uppfærslu og þessi texti á ekki við fyrir skólárið 2026-2027
Tónsmíðar og -fræði
Tónsmíðar á opnu svæði
Umsækjendur í Tónsmíðar og –fræði eða Tónsmíðar á opnu svæði eru boðaðir í stöðupróf í tónfræðigreinum. Stöðuprófin fara fram í apríl 2026.
Sýnishorn af stöðuprófum í tónfræðigreinum má nálgast hér að neðan.
Tónsmíðar rafmiðla
Umsækjendur í rafmiðla eru boðaðir í tæknikönnun sem fara fram í apríl 2026.
Tækniviðtöl eru vettvangur til að sýna fram á verklega stöðu umsækjanda hvað varðar kunnáttu og hæfni í hljóðvinnslu og reynslu afvinnu í hljóðveri.
Viðtöl valdra umsækjenda fara fram í apríl 2026.
Inntökuskilyrði í Tónsmíðar BA skipast í almenn og sértæk inntökuskilyrði en umsækjendur þurfa að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu námi.
Almenn inntökuskilyrði:
Almenn inntökuskilyrði í Listaháskólann eru stúdentspróf, lokapróf frá framhaldsskóla á þriðja hæfniþrepi, sambærilegt próf frá erlendum framhaldsskóla, eða að lágmarki 60 ECTS einingar frá viðurkenndum háskóla. Umsóknum skal fylgja staðfest afrit af prófskírteinum og staðfest afrit af námsferilsyfirliti.
Umsækjendur sem ekki uppfylla almenn inntökuskilyrði geta sótt um undanþágu (sjá skólareglur LHÍ)
Inntökunefndir meta umsóknir á grundvelli innsendra gagna auk viðtala og/eða inntökuprófa á þeim sviðum sem við á. Deildarforseti skipar inntökunefnd fyrir hverja námsleið í samráði við fagstjóra og vinna inntökunefndir eftir verklagsreglum sem kynntar eru umsækjendum.
Sértæk inntökuskilyrði:
Inntökuskilyrði tónlistardeildar eru framhaldspróf í tónlist eða sambærileg hæfni.
Miðað er við að umsækjendur hafi lokið stúdentsprófi eða sambærilegu námi. Jafnframt er gert ráð fyrir að nemendur hafi lokið námi í klassískri hljómfræði I og almennri tónlistarsögu á framhaldsstigi. Allir umsækjendur þreyta stöðupróf í tónfræði, hljómfræði og tónheyrn. Hljóti nemandi inngöngu þó niðurstaða stöðuprófs í hljómfræði sé ófullnægjandi er skilyrt að viðkomandi sæki undanfara sumar námskeið í hljómfræði á vegum tónlistardeildar í hljómfræði. Ekki er framkvæmt stöðupróf í tónlistarsögu og því er gerð krafa um að því námi hafi þegar verið lokið.
Miðað er við að umsækjendur hafi lokið stúdentsprófi eða sambærilegu námi. Jafnframt er gert ráð fyrir að nemendur hafi lokið námi í raftónlist á framhaldsskólastigi eða hafi sambærilega færni. Inntökunefnd boðar valda umsækjendur í viðtal og tæknikönnun. Tæknikönnun er vettvangur til að sýna fram á verklega kunnáttu og hæfni í hljóðvinnslu og reynslu af vinnu í hljóðveri.
Listaháskólanum er heimilt að veita inngöngu í skólann umsækjendum sem búa yfir þekkingu og reynslu sem telst fullnægjandi undirbúningur til bakkalárnáms við skólann. Þó er við það miðað að umsækjendur hafi lokið eigi færri en 105 einingum úr eldra kerfi framhaldsskólastigsins eða 150 framhaldsskólaeiningum samkvæmt nýja kerfinu.