Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Meistaranám í listkennslufræðum miðar að því að mennta fólk til kennslu ásamt því að efla með því færni og fræðilegan grunn til að miðla þekkingu sinni á ólíkum vettvangi. Áhersla er lögð á að nemendur öðlist skilning og hagnýta þekkingu á starfi kennarans.
Information is provided in Icelandic for study programmes that have Icelandic as the primary language of instruction.
Um námið
Meistaranám í listkennslufræðum er fyrir þau sem hafa lokið bakkalárgráðu í listgrein eða öðrum greinum og miðar að því að mennta fólk til kennslu ásamt því að efla með því færni og fræðilegan grunn til að miðla þekkingu sinni á ólíkum vettvangi.
Námið er fjölbreytt og byggir á námskeiðum í kennslu-, uppeldis- og sálarfræði, heimspeki og félagsfræði, samhliða þjálfun í kennslu og miðlun listgreina og verkefna á vettvangi bæði innan skólakerfisins og utan þess.
Áhersla er lögð á að nemendur öðlist skilning og þekkingu á starfi kennarans, bæði fræðilega og á vettvangi. Þeir geti skipulagt nám og námsþætti út frá gildandi námskrám og valið námsgögn, náms- og matsaðferðir við hæfi. Kennsla og miðlun eru einnig skoðuð í víðara samhengi og nemendur hvattir til að setja fram eigin sýn og hugmyndir um listnám og námsframboð í samfélaginu.
Í listkennsludeild er saman kominn hópur fólks úr fjölbreyttum greinum sem hefur það að takmarki að tileinka sér og þróa aðferðir við listkennslu með sem víðtækustum samfélagslegum og hugmyndafræðilegum skírskotunum.
Kjörsvið
Frá og með haustinu 2026 verður meistaranám í kennslufræðum og meistaranám í söng- og hljóðfærakennslu sameinað meistaranámi í listkennslufræðum. Til aðgreiningar skiptist námsleiðin meistaranám í listkennslufræði nú í fimm kjörsvið:
Kjörsvið: Aðferðir lista í almennri kennslu
Markmiðið með náminu er að efla listir og listtengd verkefni í skólastarfi með því að útskrifa kennara sem nýta aðferðir lista í námi og kennslu. Námið miðar að því að mennta fólk til kennslu ásamt því að efla með því færni og fræðilegan grunn til að miðla þekkingu sinni á ólíkum vettvangi.
Inntökuskilyrði
Bakkalárgráða eða sambærilegt háskólapróf í öðrum greinum en listum eða hönnun.
Kjörsvið: Sjónlistir
Markmiðið með náminu er að efla listir og listtengd verkefni í skólastarfi með því að útskrifa kennara sem nýta aðferðir lista í námi og kennslu. Námið miðar að því að mennta sjónlistafólk til kennslu ásamt því að efla með því færni og fræðilegan grunn til að miðla þekkingu sinni á ólíkum vettvangi.
Inntökuskilyrði
Bakkalárgráða eða sambærilegt háskólapróf í sjónlistum eða hönnun.
Kjörsvið: Sviðslistir
Markmiðið með náminu er að efla listir og listtengd verkefni í skólastarfi með því að útskrifa kennara sem nýta aðferðir lista í námi og kennslu. Námið miðar að því að mennta sviðslistafólk til kennslu ásamt því að efla með því færni og fræðilegan grunn til að miðla þekkingu sinni á ólíkum vettvangi.
Inntökuskilyrði
Bakkalárgráða eða sambærilegt háskólapróf í sviðslistum.
Kjörsvið: Söng- og hljóðfærakennsla
Námið miðar að því að mennta fólk til söng- og hljóðfærakennslu. Námið er sniðið að tónlistarskólakerfinu á Íslandi. Áhersla er lögð á að að nemendur öðlist skilning og hagnýta þekkingu á starfi tónlistarkennarans. Nemendur hafa um 12 einingar í áherslufagi sem þeir geta nýtt til að styrkja sig á völdu sviði. Áherslufagið getur verið í formi hljóðfæra- eða söngtíma en einnig er hægt að velja aðrar áherslur; spuna í kennslu, tónsmíðar í kennslu eða á öðru sviði sem nemendur telja mikilvægt til að efla færni sína á kennsluvettvangi.
Inntökuskilyrði
Bakkalárgráða í tónlist eða sambærileg menntun.
Kjörsvið: Tónlist
Markmiðið með náminu er að efla listir og listtengd verkefni í skólastarfi með því að útskrifa kennara sem nýta aðferðir lista í námi og kennslu. Námið miðar að því að mennta tónlistafólk til kennslu ásamt því að efla með því færni og fræðilegan grunn til að miðla þekkingu sinni á ólíkum vettvangi.
Inntökuskilyrði
Bakkalárgráða eða sambærilegt háskólapróf í tónlist.
Uppbygging náms
Námið er tveggja ára (fjögurra missera), 120 eininga fræðilegt og hagnýtt framhaldsnám í listkennslufræðum sem lýkur með MT, M.Art.Ed. eða MA gráðu. Nemendur vinna 10, 20 (M.Art.Ed.) eða 30 (MA) eininga lokaverkefni eða ljúka námsleiðinni án lokaverkefnis (MT).
Að loknu námi
Að loknu námi hljóta nemendur meistaragráðu (6.2) eða meistarapróf (6.1) í listkennslufræðum. Nemendur hafa aflað sér þekkingar og reynslu til að starfa á öllum skólastigum sem og sinna ólíkum menningar- og menntunartengdum verkefum í samfélaginu.
Auk almennra réttinda sem meistaragráða veitir til frekara náms og starfa fá nemendur starfsréttindi (leyfisbréf) við útskrift. Leyfisbréfið innifelur rétt útskrifaðra nemenda til að kalla sig kennara og starfa sem slíkur hér á landi á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi.
Allar umsóknir um nám fara í gegnum umsóknargátt og munu öll samskipti varðandi umsóknarferlið fara þar fram. Umsóknargjaldið er greitt í seinasta skrefi ræfrænu umsóknarinnar og er 5.000 kr.
Innritaðir og brautskráðir nemendur sem eru með Ugluaðgang þurfa einnig að stofna sérstakan aðgang í samskiptagátt þegar sótt er um nýtt nám.
Í rafrænu umsókninni gefst umsækjanda kostur á að tilgreina ástæður umsóknar, markmið, framtíðarsýn, áherslugrein og fleira í stuttum texta. Umsækjendur fá staðfestingu á því að LHÍ hafi móttekið umsóknina eftir að gengið hefur verið úr skugga um að umsækjandi hafi skilað inn öllum nauðsynlegum fylgiskjölum. Í listkennsludeild eru nemendur teknir inn einu sinni á ári og hefja nám á haustönn.
Ef fjöldi umsækjenda sem standast inntökukröfur námsleiða er undir lágmarksviðmiðum verður ekki tekið inn á námsleið fyrir komandi skólaár. Eru umsækjendur upplýstir um slíkt eins fljótt og auðið er og skrásetningargjald endurgreitt, hafi það verið greitt.
14. janúar 2026
2. mars 2026
Maí 2026
Til að umsókn sé fullgild þarf að greiða umsóknargjald og eftirfarandi gögn þurfa að berast Listaháskólanum:
Staðfest afrit af prófskírteinum, svarthvítt ljósrit gildir ekki.
Umsækjendur eru beðnir um að skrifa nöfn og netföng tveggja umsagnaraðila í þar til gerðan reit í umsókninni. Æskilegt er að annar umsagnaraðili tengist námi og hinn vinnu.
Haft verður samband við meðmælendur og óskað eftir meðmælum eftir þörfum.
Umsækjendur sem uppfylla öll inntökuskilyrði námsleiðar eru boðaðir í inntökuviðtal.
Umsækjendur þurfa ekki að hafa með sér gögn í inntökuviðtal nema þeirra sé sérstaklega óskað af inntökunefnd.
Inntökunefnd listkennsludeildar fer yfir umsóknir og velur umsækjendur sem fá boð um skólavist.
Þeir umsækjendur sem fá boð um skólavist þurfa að staðfesta hvort þeir hyggist taka því með því að greiða skrásetningargjald fyrir komandi skólaár.
Úrskurður inntökunefndarinnar er endanlegur og er inntökunefnd ekki skylt að gefa nánari skýringar á úrskurði sínum.