Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Inda – stafræn gagnvirk list og hönnun

Decor overlay

Inda er sameiginleg námsleið Listaháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík þar sem tölvunarfræði og listsköpun eru samtvinnuð. Nemendur vinna með skapandi forritun og gagnvirkni bæði í stafrænum heimum og í raunverulegum rýmum og hlutum, þar sem þeir þróa nýjar leiðir til frásagnar og upplifunar. Námið hentar þeim sem vilja nota kóða og tilraunir til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum í listum og tækni.

  • Opnað fyrir umsóknir

    24. febrúar 2026

  • Umsóknarfrestur

    13. apríl 2026

  • Umsóknum svarað

    Maí / júní 2026

  • Skrásetningargjald

    Skoða nánar

  • Nafn námsleiðar

    Inda stafræn, gagnvirk list og hönnun

  • Nafn gráðu

    BA

  • Einingar

    180 ECTS

  • Lengd náms

    6 annir – 3 ár

Námið sameinar forritun, sköpun og gagnvirkni á einstakan hátt þar sem fjölbreyttar tjáningarleiðir eru þjálfaðar. Inda leggur áherslu á leikgleði, tilraunir, sjálfstæð vinnubrögð í hugsun og framkvæmd. Í náminu öðlast nemendur tæknilega færni og hugmyndafræðilegan grunn til að starfa á breiðu sviði, allt frá stafrænni miðlun og nýjum formgerðum í samtímalist, til leikja- og kvikmyndagerðar.

UM NÁMIÐ

Inda er grunnnám fyrir fólk með ólíkan bakgrunn sem vill vinna skapandi með tækni og gagnvirka miðlun. Nemendur nota forritun sem listrænan miðil og þróa gagnvirk verk, frásagnir og upplifanir þar sem stafrænir og hlutbundnir þættir fléttast saman. Í náminu tileinka þeir sér læsi og tæknilega færni á fjölbreyttum miðlum; svo sem sýndarveruleika, gervigreind, róbótum og leikjum. Áhersla er lögð á tilraunir, frumkvæði og skapandi lausnaleit.

Inda er íslenskt kvenmannsnafn sem ber með sér mýkt og er auðvelt fyrir útlendinga að bera það fram. Nafnið er jafnframt skammstöfun fyrir Interactive Digital Art & Design og endurspeglar þær áherslur sem eru til staðar í námi við Indu.

Með því að tengja saman listir, hönnun, vísindi og samfélag þróa nemendur fjölbreyttar nálganir í gagnvirkri sköpun. Þeir vinna með siðferðileg og samfélagsleg álitamál í stafrænu umhverfi og greina hvernig tækni mótar menningu, upplifun og samskipti.

Kennsla fer fram með verklegum tilraunum og samstarfsverkefnum þvert á faggreinar. Nemendur vinna hugmyndir í gegnum tilraunir, prófanir og skapandi þróun. Samhliða verklegri þjálfun er lögð áhersla á gagnrýna hugsun, frumkvæði og samvinnu í teymum listamanna, hönnuða, fræðafólks og tæknisérfræðinga. Auk þess öðlast nemendur þjálfun í listrænni stjórnun og frumkvöðlastarfi.

Útskrifaðir nemendur brúa bil milli listrænna og tæknilegra teyma. Skapandi hönnuðir og listafólk sem getur skrifað kóða, þróað hugmyndir og mótað framtíð gagnvirkra miðla.

Uppbygging náms

Námið sem er til þriggja ára er 180 einingar og samanstendur af fræðilegum námskeiðum, tæknilegri þjálfun og verklegum vinnustofum. Það byggir á þverfaglegri nálgun þar sem samstarf lista-, vísinda- og tæknigreina skapar fjölbreytt lærdómsumhverfi. Kennsla fer fram í fyrirlestrum, á verkstæðum og í sameiginlegu vinnurými nemenda, bæði í húsnæði Listaháskólans og Háskólans í Reykjavík.

Námið er nemendamiðað og gefur hverjum og einum svigrúm til að þróa eigin áherslur. Hlutverk kennara er að leiðbeina um skapandi ferli, tæknileg verkfæri og gagnrýna hugsun sem styður þekkingarleit nemandans. Áhersla er lögð á samtal, samvinnu og greiningu verka í samhengi. Námsmat eru skriflegar umsagnir og einkunnagjöf.

Fyrsta ár – undirstöðuatriði

Á fyrsta ári er lögð áhersla á að byggja upp grunnþekkingu og færni. Nemendur kynnast skapandi aðferðum, forritun, ýmis konar tækni og verkfærum til gagnvirkrar miðlunar. Þeir kynnast einnig grunnvinnu í hönnunarferlum, rannsóknum og aðferðum. Nemendur vinna saman í teymum að tilgreindum æfingum og verkefnum í verklegum skyldunámskeiðum. Verklegir áfangar byggja á röð verkefna og æfinga sem verða meira krefjandi eftir því sem á líður. Námið fer fram í heimastofu og sækja nemendur þar ýmis námskeið, gera tilraunir og vinna að því að byggja upp samfélag í gegnum samvinnu.

Annað ár – Sérhæfing í gegnum samvinnu

Á öðru ári verður sérhæfing meiri og nemendur kafa dýpra í aðferðir og möguleika stafrænnar, tæknistuddrar og gagnvirkrar sköpunar. Nemendur geta einnig sótt valnámskeið í HR og LHÍ eftir áhugasviði og áherslum í námi. Nemendur vinna sjálfstætt og í hópum sem og að sameiginlegu verki sem sýnt er í lok annar. Einnig geta nemendur sótt um skiptinám og starfsnám.

Þriðja ár – Sérhæfing og framtíðarsýn

Megnið af þriðja námsári einbeita nemendur sér að sínu sérsviði, samþætta verkefni og valgreinar og þróa eigin lokaverkefni. Einnig vinna nemendur saman að sameiginlegu verki. Nemendum gefst tækifæri á að vinna lokaverkefni sitt í samstarfi við fyrirtæki og stofnanir í greininni.

Að loknu námi

Að loknu námi hafa nemendur öðlast færni til að vinna að sjálfstætt og í teymum að fjölbreyttum verkefnum á sviði listtölvunar, gagnvirkrar miðlunar og nýsköpunar.

Námið veitir traustan grunn til áframhaldandi sérhæfingar og undirbýr nemendur vel fyrir framhaldsnám á meistarastigi innan skapandi greina, hönnunar og tækni.

Umsóknar- og inntökuferli

Rafræn umsókn er fyllt út í umsóknargátt.

  • Athugið: fylla þarf út alla stjörnumerkta reiti og hengja við þau skjöl sem óskað er eftir, greiða umsóknargjald og staðfesta umsókn.
  • Staðfest afrit af prófskírteini (ljósrit gildir ekki) með stimpli frá viðkomandi skóla og skannað námsferilsyfirlit og hengt við rafræna umsókn.
  • Skila þarf rafrænni möppu/portfolio, í síðasta lagi 13. apríl 2026
  • Ef fylgiskjöl eru ekki í lagi, fær umsækjandi póst og möguleika á að lagfæra umsóknina.
  • Umsækjandi fær staðfestingu á að rafræn umsókn sé fullgild.
  • Inntökunefnd boðar valda umsækjendur í viðtal
  • Hér fyrir neðan eru sérleiðbeiningar fyrir vissa þætti umsóknarinnar:

Opnað fyrir umsóknir

24. febrúar 2026

Umsóknarfrestur

13. apríl 2026

Umsóknum svarað

Maí / júní 2026

Verðskrá

Skoða nánar

Sérleiðbeiningar fyrir hönnunardeild

  • 1. Mappa/portfolio

    Skylda

    Athugið að skila á rafrænni möppu/portfolio.
    Ef verið er að sækja um á fleiri námsleiðum eða deildum, þarf að skila inn umsókn og möppu fyrir hverja námsleið/deild.

    Skilafrestur möppu:
    Skilafrestur á efnislegri eða rafrænni möppu er 13. apríl 2026.

    Við biðjum þig að lesa vel yfir leiðbeiningarnar hér fyrir neðan varðandi merkingu á möppu:

    Merking möppu:
    Rafræna möppu þarf að vista með fullu nafni og kennitölu.

    Innihald möppu:

    • Umsækjendur skulu safna sýnishornum af verkefnum sínum saman í möppu á rafrænu formi.
    • Verkin eiga að endurspegla persónulega sýn nemandans, varpa ljósi á helstu hugðarefni hans og úr þeim á að vera hægt að lesa hvaða hæfileika hann hefur til frumlegrar sköpunar og framsetningar á hugmyndum sínum.
    • Ekki er nauðsynlegt að öll verkin séu fullgerð eða þau útfærð til hins ýtrasta. Þvert á móti er einnig mikilvægt að skila hvers konar hönnunarferli og hugmyndum í skjölum, á teikningum, með myndum eða í texta. Öll sýnd verk/verkefni eiga að vera höfundarverk umsækjanda. Ef verk hefur verið unnið í hópavinnu eða samstarfi er nauðsynlegt að taka það fram. Leitast skal við að skila verkefnum sem sýna tæknilega getu og þekkingu umsækjanda, sem gætu átt við, svo sem forritunarlausnir, gagnvirk sýnishorn (demo), eða leikja-mod.
    • Afar mikilvægt er að í innsendri möppu fylgi textaskjal sem skal bera heitið “Efnisyfirlit”. Í textanum þarf að útskýra þau skjöl sem liggja í rafrænu möppunni, hverju fyrir sig með hnitmiðaðri lýsingu. Skjölin skulu hafa heiti sem vísað er til skipulega í skjalinu.
    • Umsækjendur meta sjálfir hvað rúmast innan möppunnar en mikilvægt er að hún endurspegli getu, færni og sýn hans á fagið í gegnum skapandi vinnu.
    • Ef efni í möppunni eru hlekkir eða vísanir á slóðir utan möppunnar þarf að gera því efni skil í textaskjalinu Efnisyfirlit. Ef vísað er í efni utan möppunnar s.s. hlekkir eða vísanir í önnur skjöl en ekki tilgreint nánar um hvað er að ræða og hvernig það tengist verkum umsækjanda er ekki tryggt að það verði skoðað og metið.
  • 2. Kynningarbréf

    Skylda

    Umsækjendur gera grein fyrir ástæðu umsóknar í viðkomandi námsleið. Kynningarbréfið á að hámarki að vera ein blaðsíða.

  • 3. Inntökuferlið

    Skylda

    Skipuð er inntökunefnd fyrir hverja námsleið sem metur umsóknir og velur úr hópi umsækjenda. Nefndin er skipuð fagstjóra viðkomandi námsleiðar ásamt einum til tveimur sérfræðingum á viðkomandi fagsviði.

    Inntökuferlið er eftirfarandi:
    Umsóknir eru metnar af inntökunefnd. Umsækjendur sem standast mat inntökunefndar komast í úrtakshóp og eru boðaðir í viðtal.
    Umsækjendur hitta inntökunefnd í viðtali þar sem áhugi þeirra á tilvonandi námi, afstaða þeirra og viðhorf til fagsins er kannaður. Umsækjendur geta óskað eftir rafrænu viðtali sjái þeir sér ekki fært að mæta í eigin persónu.

    Sérverkefni:
    Inntökunefnd er heimilt að óska eftir sérverkefni af umsækjanda.

    Niðurstöður umsókna:
    Öllum umsækjendum verður sent rafrænt svar við umsóknum í maí/júní. Niðurstöður inntökunefnda eru endanlegar og ekki er skylt að gefa nánari útskýringu á synjun um skólavist.

    Umsækjendum sem boðin er skólavist þurfa að greiða skráningargjald til að staðfesta skólavistina. Sjá upplýsingar um skrásetningargjald.

    Frá og með haustinu 2026 verða skólagjöld sett á umsækjendur frá löndum utan EES, Færeyja, Grænlands og Sviss. Frekari upplýsingar um skólagjöld.

  • 4.Inntökuskilyrði

    Miðað er við að umsækjendur hafi lokið stúdentsprófi eða sambærilegu námi.

  • 5. Undanþágur vegna inntöku

    Skylda

    Listaháskólanum er heimilt að veita þeim umsækjendum inngöngu í skólann sem búa yfir þekkingu og reynslu sem telst fullnægjandi undirbúningur til bakkalárnáms við skólann.

    Í slíku tilfelli þarf umsækjandi að uppfylla hvoru tveggja:

    • Hafa lokið eigi færri en 105 einingum úr eldra kerfi framhaldsskólastigsins eða 150 framhaldsskólaeiningum samkvæmt nýja kerfinu.
    • Sýna fram á framúrskarandi hæfni, þekkingu og sýn á fagið með innsendri möppu/portfolio sbr. sem fram kom hér að ofan.

AÐFERÐIR, GILDI OG LEIÐARSTEF Inda

Inda / nemendur

Einstaklingar með ástríðu fyrir listum og tækni þróa nýjar miðlunarleiðir til frásagnar og upplifunar. Forritarar nota kóða sem listrænan miðil; leikjahönnuðir skapa gagnvirkar frásagnir; listafólk og hugsuðir fást við umbreytingu á öllum sviðum og hér kemur tæknin inn.

Inda / kennsla

Tölvunarfræði og listsköpun samtvinnuð í þágu gagnvirkra upplifana.

Námskeið þar sem áhersla er lögð á að nota stafræna tækni og margskonar verkfæri til að þróa og miðla sköpunarverkum sem geta verið aflvaki umbreytinga og framfara.

Inda / námið

Sameiginleg námsleið Háskólans í Reykjavík og Listaháskóla Íslands. Einstakt samstarf sem örvar nýja hugsun og tjáningarmöguleika í fjölbreyttu samhengi sem býr nemendur undir að verða leiðandi í listrænni, skapandi samvinnu í síbreytilegu umhverfi tækni og lista.

Inda / gildi

Meðvitund um samfélagsleg, siðfræðileg og heimspekileg áhrif tækni og tölvuvæðingar.

Alúð og fagleg vinnubrögð eru leiðarljós nemenda og beita þeir þekkingu sinni og verkfærum á ábyrgan, heiðarlegan og umhyggjusaman hátt, í námi og starfi.

Inda / upplifun

Menning Indu einkennist af leikgleði, frjálsræði, gagnkvæmri virðingu og jafningjatilfinningu.

Heimastofan er náms- og vinnurými nemenda. Þar deila þeir þekkingu, vinna saman að verkefnum og nýta rýmið í ýmsum tilgangi s.s. til að halda samkomur, sýningar og kynningar. Nemendum gefst kostur á að kynnast fjölbreyttum búnaði og aðferðum til að miðla, smíða og þróa á gagnvirkan og stafrænan hátt.

LEIÐARSTEF

Í náminu er LEIKGLEÐI viðhorf í róttæku skapandi ferli. Leikgleði er sífellt mikilvægari þáttur í starfi og rannsóknum. Hún eykur í senn forvitni, áhuga og einbeitingu við nám, eflir frjálsræði, þor og teymisvinnu. Leikgleði leiðir af sér róttækt hugarfar, gagnrýna sýn á hefðbundin kerfi og stuðlar að óhefðbundinni nálgun og tilraunum sem örva listrænar aðferðir.

UMHYGGJA er varðar siðferðileg gildi og menningu. Aðferðarfræði Indu byggir á umhyggju. Verkefni eru unnin af ábyrgð og einkennast af skýrum skilningi á siðferðilegum gildum og álitamálum í víðu samhengi.

SAMVINNA á jafningjagrundvelli, í námi og starfi. Góð samvinna skapar tækifæri til að koma auga á nýjar leiðir til að miðla hugsunum og hugmyndum. Teymisvinna er gegnumgangandi í Indu þar sem tekist er á við verkefni og viðfangsefni með gagnvirkum aðferðum og upplifunum.

LIPURÐ eflir þor iðkenda til að fara óhefðbundnar leiðir. Í framtíðinni munu tölvur og önnur tækni vera órjúfanlegur partur af öllum sviðum samfélagsins. Brautskráðir nemendur Indu munu brúa bil tækni og lista, hafa áræðni og dug til að þvera mörk milli ólíkra greina og gerast leiðtogar á sínu sviði.