Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Fimm fá framgang í stöðu prófessors hjá LHÍ

  • 12.ágúst 2025

Fimm akademískir starfsmenn hafa fengið framgang í starfi. Starfsfólkið kemur úr fjórum deildum skólans, arkitektúrdeild, myndlistardeild, listkennsludeild og sviðslistadeild. Tvisvar á ári gefst akademísku starfsfólki Listaháskóla Íslands að sækja um framgang í starfi. Hæfisnefnd fer yfir umsóknirnar og fer starfsfólkið í gegnum ítarlegt faglegt mat.

Eftirtaldir starfsmenn fá framgang í starf prófessors:

  • Anna María Bogadóttir – arkitektúrdeild
  • Carl Boutard – myndlistardeild
  • Guðbjörg R. Jóhannesdóttir – listkennsludeild
  • Katrín Gunnarsdóttir – sviðslistadeild
  • Kristín Valsdóttir – listkennsludeild

Við óskum þeim innilega til hamingju!

Á myndinni eru þau Guðbjörg, Katrín, Kristín, Carl og Anna María.