Orð um tónsmíðar - um starf íðorðanefndar tónsmíðabrautar
Atli Ingólfsson
Við Listaháskóla Íslands starfa ýmsar nefndir og ráð sem flest hafa með skipulag námsins og starfsins að gera. Skólinn hýsir þó jafnframt einstaka nefndir sem helgaðar eru hreinum faglegum efnum. Innan tónlistardeildarinnar búa til dæmis nefnd um Rannsóknarstofu í tónlist, ritnefnd vefritsins Þráða og enn ein, sem minna hefur borið á, en það er íðorðanefnd tónsmíðabrautar.
Lesa meira