Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Bergrún Snæbjörnsdóttir, tónskáld og dósent við tónlistardeild LHÍ, hlaut á dögunum tilnefningu til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs (Nordic Concil Music Prize) fyrir verkið Intraloper. Verkið var frumflutt á Myrkum Músíkdögum fyrr á árinu af Bergrúnu sjálfri ásamt hinum virta málmblásarakvartett Apparat frá Berlín. Í verkinu tekst Bergrúnu að mynda einstakan hljóðheim þar sem lágstemmd og breytileg mótíf og næmni fyrir rými og tónum taka áheyrendur á heillandi og áhrifaríkt ferðalag. Áhrifin eru á sama tíma viðkvæm og róleg en jafnframt spennt og áleitin. Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars að með verkinu Intraloper hafi Bergrún fest sig í sessi sem eina merkustu rödd íslenskrar framúrstefnu.
Tónlist Bergrúnar hefur vakið sívaxandi athygli á undanförnum árum og hafa verk hennar meðal annars verið flutt af Fílharmóníusveitinni í Osló, Ensemble Musikfabrik í Þýskalandi og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún nam tónsmíðar við Listaháskóla Íslands og síðar við Mills College í Kaliforníu, þar sem hún naut leiðsagnar brautryðjenda í framsækinni tilraunatónlist, á borð við Pauline Oliveros, Fred Frith og Zeenu Parkins.
Við óskum Bergrúnu innilega til hamingju með tilnefninguna.