Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Skiptinám frá LHÍ

Að fara í skiptinám er einstakt tækifæri til að öðlast nýja sýn og kynnast menningu og samfélagi annarrar þjóðar. Nemendur sem fara í skiptinám fá tækifæri til að mynda ný tengsl sem kunna að vara lengi eða jafnvel alla ævi.

Ljóst er að þeir sem velja þá leið að fara í skiptinám eru reynslunni ríkari þegar kemur að því að sækja um framhaldsnám eða önnur störf erlendis síðar á lífsleiðinni. Jafnframt eru gerðar síauknar kröfur um reynslu og þáttöku í alþjóðlegu samstarfi á evrópskum vinnumarkaði.

Nemendum Listaháskólans stendur til boða að sækja um skiptinám og fá það metið til eininga sem hluta af sínu námi. Nemendur í BA námi skulu hafa lokið minnst 60 einingum áður en skiptinám hefst en nemendur í MA námi minnst 30. Athugið að það er breytilegt eftir námsgrein hvort skiptinám sé í boði og eins á hvaða önn og/eða ári. Ráðfærið ykkur við ykkar fagstjóra ef þið hafið í huga að fara í skiptinám.

Skiptinám er metið til eininga sem hluti af prófgráðu nemanda við heimaskóla. Samkvæmt samningum Erasmus greiða skiptinemar ávallt skólagjöld heimaskóla en ekki gestaskóla.

Umsóknarfrestur til að sækja um skiptinám á vorönn er 15.september og fyrir skiptinám á haustönn / heilt námsár er 15.febrúar. Hægt er að sækja um í allt að þrjá skóla.

Listaháskóli Íslands er með samstarfssamninga við fjölda skóla á Norðurlöndunum og í Evrópu. Smelltu á hlekkinn hér fyrir neðan til að skoða hvaða skóla við erum með samninga við. Notaðu síurnar í leitarvélinni til að fá upp skóla eftir námsgrein, námsstigi og landi.

Erasmus kóði LHÍ

IS REYKJAV06

Bóka viðtalstíma

Fáið almenna ráðgjöf og upplýsingar er varða skiptinám erlendis og starfsnám erlendis með því að smella hér.

Umsóknarform fyrir skiptinám má finna með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.

Leiðbeiningar um það hvernig nemendur útbúa rafrænan námssamning (Online Learning Agreement – OLA) má hlaða niður með því að smella hér fyrir neðan.