Þráinn lauk Meistaranámi í tónsmíðum við Konunglega
Konservatoríið í Haag 2011 og Bakkalágráðu frá Listaháskóla
Íslands 2009, starfandi meðlimur tónskáldasamtakanna S.L.Á.T.U.R
(samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík) og kemur
að skipulagningu ýmissa viðburða samtakanna, ásamt því að
vera listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar Hljóðön
sem haldin er af Lista- og Menningarmiðstöðinni Hafnarborg. Á árunum 2010-2013 gegndi Þráinn stöðu framkvæmdar- og verkefnisstjóra Íslandsnefndar Ung Nordisk Musik (UNM) og skipulagði hátíðina UNM 2012 - Music Innovation.
Tónlist Þráins hefur verið flutt víða um heim af hinum ýmsum
hljóðfærahópum á borð við Kammersveit Reykjavíkur, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Njútón
(IS), Athelas sinfonietta (DK), Uusinta ensemble (FI), Ensemble Klang
(NL) og við ýmis tækifæri á borð við hátíðir eins og Myrka
Músíkdaga, Tectonics, UNM og á tónleikaröðinni Jaðarber.
Þráinn hefur komið að ýmsu fræðastarfi og fyrirlesið við
hin ýmsu tækifæri við Listaháskóla Íslands, Art in
Translation 2012, Listasafni Reykjavíkur sem og Íslands, ásamt
því að koma að skipulagi atburða hjá LornaLAB, fræðsluvettvang
um skörun tækni og lista.
Vefsvæði: http://thrainnhjalmarsson.info/