Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Í þessari viku fer fram sérverkefnavika í tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Nemendur fá þar tækifæri til að vinna með kennurum og gestakennurum að fjölbreyttum verkefnum sem víkka sjóndeildarhring þeirra í tónlistarsköpun og flutningi.
Sérverkefnavikan er fastur liður í tónlistardeild og veitir nemendum tækifæri til að þróa nýjar hugmyndir, stíga út fyrir hefðbundin námsramma og skapa tónlist í samvinnu við kennara og samnemendur.
Viðburðirnir fara allir fram í húsi Tónlistardeildar, Skipholti 31.
Öll velkomin
