Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Ívar Valgarðsson myndlistarmaður mun fjalla um sýninguna Úthaf / Ocean sem sett var upp í Listasafni Reykjanesbæjar árið 2025 auk fleiri sýninga. Sýningin Úthaf var sérstaklega unnin fyrir Listsafn Reykjanesbæjar en kveikjan að verkinu er hafið sem umlykur Reykjanesbæ og áhrif birtu og veðurs á litbrigði þess. Ívar leggur áherslu á einfaldleika, hreinan efnivið og beina upplifun áhorfandans sem birtist í því hvernig ljósmyndir og málverk eru sett fram sem ein rýmisleg eining. Verk Ívars hvíla á arfleið konseptlistar og minimalisma og spyrja áleitinna verufræðilegra spurninga um eðli listarinnar og efnisheimsins.
Ívar Valgarðsson (f. 1954) hefur verið starfandi myndlistarmaður frá áttunda áratugnum. Hann nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1971 – 1975 og síðar í Hollandi, þar sem hann þróaði þá hugmyndafræðilegu nálgun sem hefur einkennt feril hans. Ívar vinnur fyrst og fremst með innsetningar og ljósmyndir og vídeó, þar sem hann rannsakar eðli hluta, tíma, efnisleika og skynjun. Verk hans byggja gjarnan á kunnuglegum efnum sem hann setur í nýtt samhengi og skapar þannig ljóðræna og hugleiðandi upplifun. Ívar hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum hérlendis og erlendis.