Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Komdu í bíó – Jörðin undir fótum okkar

Listaháskóli Íslands býður öll velkomin í bíó!

Jörðin undir fótum okkar segir frá sólarlagi lífsins á hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík þar sem tíminn lýtur sínum eigin lögmálum. Myndin er ljóðræn og veitir einstaka innsýn í þetta tímabil lífsins þar sem mennska og kærleikur skín í gegn. Myndin hefur hrifið fólk á öllum aldri og ekki síður yngri kynslóðir.

Kvikmyndin er eftir Yrsu Roca Fannberg og hefur farið sigurför víða um Evrópu og hlotið einróma lof. Hún var frumsýnd á dönsku heimildamyndahátíðinni CPH:Dox. Myndin hefur þegar verið valin til sýninga á Gimli International Film Festival, Dok.fest Münich, DMZ International Documentary Film Festival og Nordisk Panorama við glimrandi undirtektir. Í fyrra var hún einni sýnd á Riff og í Bíó Paradís.

Frábært tækifæri til að upplifa þessa áhrifaríku mynd á stórum skjá — ekki láta þetta fram hjá þér fara!

Aðrir viðburðir

: ?>