Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslenskukl. 13:30 – Dynjandi, Skipholti 31
Fyrirlestur ReykjavíkBarokk Ensemble: Connecting past and present through the music and stories of women.Fyrirlesarar eru Anna Hugadóttir og Diljá Sigursveinsdóttir, stofnfélagar ReykjavíkBarokk.
Á undanförnum árum hefur barokkhópurinn ReykjavíkBarokk sett upp tónlistarleikhús byggt á sögum af konum fyrri alda sem hafa rutt brautina í átt að því að frelsa tjáningu og athafnir kvenna á tímum þar sem feðraveldið hélt öllum slíkum tilraunum niðri með harðri hendi. Hópurinn hefur m.a. sagt sögur af íslenskum konum og sett þær í samhengi við listsköpun kvenna í öðrum löndum á sama tíma. Eitt fyrsta verkefni hópsins í þessa veru, Í gegnum rimlana byggt m.a. á tónlist Lucreziu Orsina Vizzana, þróaðist upphaflega sem lokaverkefni Diljáar Sigursveinsdóttur úr evrópsku NAIP meistaranámi frá LHÍ. Hópurinn var þar að auki brautryðjandi í að taka verk Francescu Caccini til flutnings hér á landi.
Aðgangur ókeypis og öll velkomin. Aðgengi fyrir hljólastóla gegnum aðalinngang Dynjanda.
______________________
kl. 15:00 – Dynjandi, Skipholti 31
Vinnustofa Barocco Italiano: Rhetoric and the New Style. Leiðbeinendur eru Anna Paradiso Laurin og Dan Laurin, professorar við Konunglega tónlistarháskólann í Stokkhólmi.
Anna Paradiso Laurin og Dan Laurin hafa unnið náið saman í tónlist allt frá 2008. Að þeirra mati er mikilvægt að stúdera frumútgáfur eða handrit af tónlist þegar flutningsmáti og continuo útfærslur eru útfærðar. Það á ekki síst við í barokktónlist. Það var mikilvægur hluti þess að líta á tónlist eins og tungumál að sjá tónsmíðina sem ræðulist eða rhetoric með sínum reglum og formgerðum. Eins og frumheimildirnar segja okkur, þá á tónlistin að hreyfa við okkur, gleðja og vekja hughrif, og í miðju allra þeirra tilfinninga stendur manneskjan sjálf með frelsi til að skapa og túlka.
Aðgangur ókeypis og öll velkomin. Aðgengi fyrir hljólastóla gegnum aðalinngang Dynjanda.
kl. 12:10 – Dynjandi, Skipholti 31
Hádegistónleikar
Verk frá fyrri hluta 17. aldar eftir C. Monteverdi, Barböru Strozzi, G. Gabrieli, W. Lawes o.fl.
Aðgangur ókeypis og öll velkomin. Aðgengi fyrir hljólastóla gegnum aðalinngang Dynjanda.
kl. 15:00 – Neskirkja
Frumsýning óperunnar La liberazione di Ruggiero dall’ isola di Alcina.
kl. 15:00 – Neskirkja
Sýning óperunnar La liberazione di Ruggiero dall’ isola di Alcina.
Listaháskóli Íslands stendur fyrir evrópsku samstarfsverkefni í vetur, svokölluðu BIP námskeiði (Blended Intensive Project). Viðfangsefnið er barokkópera sem verður sett á svið í samvinnu við nokkra tónlistarháskóla á Norðurlöndum og á meginlandi Evrópu. Um er að ræða elstu varðveittu óperu eftir konu, La liberazione di Ruggiero dall’ isola di Alcina eftir Francesca Caccini. Óperan var frumflutt í Flórens í febrúar 1625 og verða því nákvæmlega 400 ár liðin frá þeim viðburði.
Um 50 flytjendur, helmingur söngvarar og helmingur hljóðfæraleikarar, taka þátt í óperunni, auk þess leiðbeinendur og fjölmargir aðilar úr stoðsviðum þátttökuskólanna. Þeir eru auk Listaháskólans: Sibeliusarakademian í Helsinki, Konunglegi tónlistarháskólinn í Stokkhólmi, Konunglega konservatoríið í Den Haag. Einnig koma nemendur frá tónlistarháskólum í Bergen, Þrándheimi og Basel. Meðal gestakennara verða Kristina Hammarström, Päivi Kantola, Sólveig Thoroddsen, Sergio Coto, Dan Laurin, Anna Paradiso og Ólöf Ingólfsdóttir. Sigurður Halldórsson, prófessor við tónlistardeild LHÍ stýrir verkefninu og stjórnar flutningi.
Aðgangur ókeypis og öll velkomin. Aðgengi fyrir hljólastóla gegnum aðalinngang Neskirkju.