Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Gleym mér ei hádegistónleikar í Hörpuhorni

Gleym mér ei er samstarfsverkefni söngdeildar LHÍ og Hörpu. Söngnemendur við tónlistardeild Listaháskóla Íslands gleðja gesti með ljúfum hádegistónum fjóra miðvikudaga í haust.

Tónleikaröðin Gleym mér ei er fastur liður á hverju misseri. Efnisskráin fléttar saman fjölbreytt viðfangsefni hverju sinni, allt frá ástaróða til sársauka og sjúkdóma. Meðleikur er í höndum Matthildar Önnu Gísladóttur, píanóleikara.

Á lokatónleikum Gleym mér ei sameinast nemendur söng- og hljóðfæradeildar LHÍ og flytja íslensk sönglög úr smiðju tónskáldsins Sveinbjörns Sveinbjörnssonar.

Tónleikarnir fara allir fram kl. 12:00 í einstökum hljómi í Hörpuhorni í Hörpu.

Aðgangur er ókeypis og öll eru hjartanlega velkomin

Dagskrá

8.október – Úr ýmsum áttum
22.október – Óperur og söngleikir
5.nóvember – Sjúkdómar og sársauki
12.nóvember – Íslensk sönglög eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson