Húsnæði Listaháskóla Íslands er mótað að skapandi vinnu, með rýmum sem styðja fjölbreyttar listgreinar og ólíkar vinnuaðferðir. Nemendur hafa aðgang að vel búnum vinnustofum, sérhæfðum verk- og tækjarýmum, stúdíóum og sameiginlegum svæðum sem hvetja til hugmyndavinnu og samtals. Aðstaðan er í stöðugri þróun og endurspeglar lifandi skólasamfélag þar sem nemendur geta unnið sjálfstætt, prófað sig áfram og þróað sköpun sína í faglegu umhverfi
Aðstaða
Aðstaða Listaháskóla Íslands er skipt í heimasvæði sem skapa skýra og þægilega umgjörð fyrir ólíkar listgreinar og vinnuaðferðir. Nemendur hafa aðgang að fjölbreyttum verkstæðum, stúdíóum og vinnurýmum sem eru sérhönnuð fyrir skapandi vinnu, hvort sem unnið er með efnislega miðla, hljóð, mynd, hreyfingu eða stafræna tækni. Heimasvæðin eru hugsuð sem lifandi vinnusvæði þar sem nemendur geta unnið sjálfstætt, átt samskipti við samnemendur og fengið aðstoð frá sérfræðingum í tækni og verklegum þáttum.
Aðgengi
Aðgengi er lykilþáttur í daglegu lífi í Listaháskóla Íslands og lögð er áhersla á að skapa umhverfi þar sem allir nemendur geta tekið fullan þátt í námi og starfi. Í húsnæði skólans er unnið markvisst að því að tryggja að rými, aðstaða og þjónusta séu aðgengileg ólíkum hópum, hvort sem um er að ræða hreyfihamlaða, heyrn- eða sjónskerta nemendur eða þá sem þurfa sértækan stuðning. Nemendur geta leitað til starfsfólks skólans til að fá upplýsingar um aðgengismál, sérúrræði eða aðstoð við aðlögun námsumhverfis,
Rafræn vöktun
Öryggismyndavélar eru mikilvægur hlekkur í öryggiskerfi Listaháskóla Íslands. Reynslan sýnir að öryggismyndavélar hafa talsverðan fælingarmátt og geta verið ómetanlegar við að upplýsa þjófnaði og skemmdarverk. Þær eru hluti af þeirri viðleitni að verja eigur Listaháskóla Íslands, starfsfólks og nemenda og jafnframt bæta öryggi á háskólasvæðinu almennt.
BókasafnLibrary
Bókasafn og upplýsingaþjónusta Listaháskóla Íslands er sérfræðisafn á sviði þeirra listgreina sem kenndar eru við skólann og er safnið stærsta listbókasafn landsins. Aðgangur að bókasafninu (og sjálfsafgreiðsla) er í samræmi við opnunartíma byggingarinnar í Hamri.
Bókasafn og upplýsingaþjónusta 02Tölvu og vefþjónustaIT services
Tölvu- og vefþjónusta LHÍ ber ábyrgð á rekstri tölvukerfis skólans og tækni- og tölvuþjónustu við starfsmenn og nemendur.
Tölvu- og vefþjónusta 03VerkstæðiWorkshops
Skólinn rekur öflugt net verkstæða sem styður við fjölbreytta listsköpun, hönnun og tilraunastarfsemi.
VerkstæðiStarfsstöðvar skólans.
Spurningar um þetta efni?
Hafðu samband við skrifstofu skólans og við komum fyrirspurninni til réttrar deildar eða sviðs.